Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samstarf í þágu útflutningshagsmuna - hádegisfundur

Utanríkisráðherra og fulltrúar Íslandsstofu ræða samstarf og þjónustu við íslenskar útflutningsgreinar á Norðurlandi

Utanríkisráðuneytið og Íslandsstofa bjóða til samtalsfundar í Hofi á Akureyri miðvikudaginn 13. nóvember nk. Þar munu Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Bergþóra Halldórsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, ræða samstarf og þjónustu við íslenska útflytjendur. Fundurinn fylgir m.a. eftir vinnustofu sem haldin var fyrr á árinu í tengslum við mótun framtíðarstefnu fyrir íslenskan útflutning. 

Hvar: Hofi, Akureyri (salurinn Naust), Strandgötu 12. 

Hvenær: Miðvikudaginn 13. nóvember kl. 12.00-13.30. 
Boðið verður upp á léttar hádegisveitingar.

Allir velkomnir en skráning er nauðsynleg. Smelltu hér til að skrá þig.

Um er að ræða samstarfsverkefni Íslandsstofu og utanríkissráðuneytisins.