Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Uppskeruhátíð verður 20. október

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi verður haldin á Húsavík, fimmtudaginn 20. október næstkomandi.

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi verður haldin á Húsavík, fimmtudaginn 20. október næstkomandi. Farið verður í heimsókn til fyrirtækja á Húsavík og í nágrenni og endað með kvöldverði og skemmtun til miðnættis á Fosshóteli.

Fyrirkomulagið verður með hefðbundnu sniði, en rútur munu leggja af stað frá bæði Húsavík og Akureyri kl. 9 um morguninn. Mæting er 8:50 í síðasta lagi. Þannig geta þátttakendur sem koma úr austurátt farið á einkabílum til Húsavíkur og skilið þá eftir þar og þeir sem koma úr vesturátt geta skilið sína bíla eftir á Akureyri. Þátttakendur eru hvattir til þess að nýta tilboð sem gististaðir á Húsavík bjóða upp á vegna hátíðarinnar. Sjá tilboð hér að neðan.

Boðið verður upp á rútuferð til Akureyrar að skemmtun lokinni. Jafnframt verður boðið upp á rútu til Akureyrar morguninn eftir fyrir þá sem ætla að gista. 

Ef einhver hefur ofnæmi eða séróskir varðandi mat skal tilgreina slíkt í skráningarforminu.

Uppskeruhátíðin er einungis fyrir samstarfsfyrirtæki MN. Kostnaður við þátttöku er kr. 9.500 á mann. Innifalið í því er rúta frá Akureyri og Húsavík og aftur til baka, hádegismatur og ýmsar léttar veitingar, kvöldverður og skemmtidagskrá. Skráningargjald verður innheimt 17. október og verður ekki endurgreitt eftir það.

Smelltu hér til að skrá þig á hátíðina.


Fosshótel:
Gisting með morgunverði 15.500 kr.
Bóka þarf gistingu með því senda póst á eyrun@fosshotel.is

Cape Hotel:
Tveggja manna herbergi: 13.500 kr.
Bóka þarf gistingu með því að senda póst á info@husavikhotels.com

English

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi is an annual celebration, which will be held on the 20th of October in Húsavík. The schedule includes visits to tourism companies in and around the town, dinner, and awards will be given to companies for their achievements.

At 9 am, busses will leave from both Akureyri and Húsavík so participants can choose to drive to either place to leave their car. Busses will go back to Akureyri in the evening and the morning after. Participants are encouraged to stay the night, with special offers available on accommodation.

The celebration is only for companies that are members of Visit North Iceland. The price is 9.500 ISK per person, which includes the bus ride, lunch, and dinner. The fee will be collected on the 17th of October and is non-refundable after that date.

Click here to sign up!