Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Við leitum að verkefnastjóra áfangastaðaáætlunar

Langar þig að þróa spennandi áfangastað með öflugu teymi Markaðsstofu Norðurlands? Ert þú skapandi einstaklingur með mikla skipulagshæfileika, framsýni og góðar hugmyndir?

Við leitum að verkefnastjóra áfangastaðaáætlunar.

Verkefnastjóri vinnur í nánu samstarfi við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á öllu Norðurlandi að þróun og uppbyggingu áfangastaðarins og þarf að hafa brennandi áhuga og góða þekkingu á markaðsmálum.

Helstu verkefni

  • Framkvæmd og innleiðing áfangastaðaáætlunar
  • Stefnumótun, vöruþróun og nýsköpun í samstarfi við ferðaþjónustuna
  • Þarfagreining rannsókna og úrvinnsla gagna
  • Mat á fræðsluþörf, miðlun upplýsinga og handleiðsla
  • Þróun á sjálfbærri ferðaþjónustu og innleiðing nýrra verkefna
  • Samskipti við áfangastaðastofur um allt land, ferðaþjónustuna, sveitarfélög og stoðkerfi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á verkefnastjórnun, áætlanagerð og greiningu gagna
  • Reynsla og þekking á markaðsmálum er nauðsyn
  • Góð þekking á Norðurlandi og ferðaþjónustu
  • Góð samskiptahæfni og skipuleg vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Starfið krefst ferðalaga, sjálfstæðra vinnubragða og sveigjanlegs vinnutíma

Umsóknarfrestur er til 12. ágúst.
Starfsstöð verður á Norðurlandi vestra í húsnæði SSNV.

Frekari upplýsingar veitir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri í s: 864 6786 og skulu umsóknir berast á arnheidur@nordurland.is

Markaðsstofa Norðurlands starfar á svæðinu frá Hrútafirði til Bakkafjarðar. MN vinnur að markaðssetningu og þróun Norðurlands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki, sveitarfélög og ríki.