Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Viðspyrna í ferðaþjónustu

Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa Norðurlands bjóða til súpufundar miðvikudaginn 2. júní kl. 11.30 á veitingastaðnum Múlabergi á Hótel Kea á Akureyri.

Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa Norðurlands bjóða til súpufundar miðvikudaginn 2. júní kl. 11.30 á veitingastaðnum Múlabergi á Hótel Kea á Akureyri.

Tilefni er að ræða um viðspyrnu í ferðaþjónustu og fara yfir ástand og horfur í greininni okkar sem er að ná sér aftur á strik eftir erfiða tíma.

Síðustu daga hafa formaður, framkvæmdastjóri og starfsfólk SAF gert víðreist um Norðurland og verða á fundinum.

Tökum spjallið og fáum okkur súpu saman.

Hlökkum til að sjá þig!

Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa Norðurlands.