Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Upptaka frá kynningu á áfangastaðaáætlun

Fimmtudaginn 15. nóvember hélt ferðamálastofu kynningarfund um áfangastaðaáætlanir landshluta. Björn H. Reynisson, verkefnastjóri áfangastaðaáætlunar Norðurlands, kynnti afrakstur sinnar vinnu en sem kunnugt er var áætlunin birt hér á vefnum í júlí síðastliðnum

Fimmtudaginn 15. nóvember hélt ferðamálastofu kynningarfund um áfangastaðaáætlanir landshluta. Björn H. Reynisson, verkefnastjóri áfangastaðaáætlunar Norðurlands, kynnti afrakstur sinnar vinnu en sem kunnugt er var áætlunin birt hér á vefnum í júlí síðastliðnum. Upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan, en kynning Björns hefst á mínútu 44:33. Hér má sjá glærurnar í PDF skjali.

Markaðsstofa Norðurlands hefur unnið að skýrslunni undanfarin misseri, fyrir Ferðamálastofu Íslands sem heldur utan um slíkar greiningar í öllum landshlutum. Markmið verkefnisins var að gera stöðumat á ferðaþjónustu á Norðurlandi, greina ástand hennar í samhengi við innviði og markaðssetningu og sömuleiðis er skerpt á framtíðarmarkmiðum ferðaþjónustunnar á Norðurlandi.

Í skýrslunni má finna forgangsröðun verkefna á svæðinu, en Markaðsstofa Norðurlands ákvað að fara þá leið að fá aðstoð allra þeirra sem vildu leggja hönd á plóg við forgangsröðun. Sérstök áhersla var einnig lögð á að fá stærstu hagsmunaaðilana að borðinu. Að lokum voru 15 verkefni valin sem forgangsverkefni á Norðurlandi næstu þrjú árin.

Ef einhverjir vilja koma á framfæri spurningum eða athugasemdum þá er vinsamlegast bent á að hafa samband við verkefnastjóra verkefnisins Björn H Reynisson, bjorn@nordurland.is