Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fyrsta flug Voigt Travel og Transavia til Akureyrar

Fyrsta ferð Transavia með ferðamenn á vegum Voigt Travel kom mánudaginn 27. maí frá Rotterdam. Þetta er fyrsta flugið af 16 hjá Transavia í sumar til höfuðstaðar Norðurlands. Við þetta tækifæri tilkynnti Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel að ákveðið hefði verið að fljúga frá flugvellinum á Akureyri til Amsterdam næsta vetur. Flogið yrði á mánudögum og föstudögum frá 14. febrúar. Farnar yrðu alls átta ferðir.

Fyrsta flugvél Transavia með ferðamenn á vegum Voigt Travel kom mánudaginn 27. maí frá Rotterdam. Þetta er fyrsta flugið af 16 hjá Transavia í sumar til höfuðstaðar Norðurlands. Við þetta tækifæri tilkynnti Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel að ákveðið hefði verið að fljúga frá flugvellinum á Akureyri til Amsterdam næsta vetur. Flogið yrði á mánudögum og föstudögum frá 14. febrúar, alls átta sinnum.

Þessar ferðir eru afrakstur viðamikils samstarfs Transavia og Voigt Travel. Flugfélagið hefur flogið til Lapplands í Finnlandi og Svíþjóð og norðurhluta Noregs um árabil fyrir Voigt Travel. Nú hefur Íslandi verið bætt við lista áfangastaða þess við heimskautsbauginn.

„Sem ferðaskrifstofa þurfum við stöðugt að skapa okkur sérstöðu,“ segir Cees van den Bosch, forstjóri Voigt Travel, sem var meðal farþega í þessu fyrsta flugi til Akureyrar. „Ísland hefur aldrei verið vinsælla, en aðallega fyrir stutt stopp sem viðkomustaður, og þessi magnaði áfangastaður á betra skilið en það. Þess vegna höfum við vísvitandi valið að fljúga til Akureyrar til að gera farþegum okkar kleift að ferðast strax utan alfaraleiða og taka sér tíma til að kanna landið. Norðurhluti Íslands er enn að miklu leyti ósnortinn og þar má finna alveg jafnmikið af fossum, svörtum ströndum, eldfjöllum og á Suðvesturlandi.“

Charles Verstegen, framkvæmdastjóri: „Transavia er með sterka stöðu á þekktum ferðamannastöðum í Suður-Evrópu, Norður-Afríku og Miðausturlöndunum. Með þessu þægilega beina flugi til Akureyrar er nú einnig hægt að komast til norðurhluta Evrópu frá Hollandi á sumrin.“

Farþegar Voigt Travel, BBI Travel og Transavia fengu óvæntan glaðning við innritun þar sem þeir fengu gjafabréf fyrir skál af íslensku skyri á flugvellinum í Rotterdam. Um borð beið svo glaðningur frá Transavia og Voigt Travel. Strax eftir lendingu var flugvélin hyllt með heiðursboga úr vatni og í flugstöðinni tóku opinber sendinefnd og fjölmiðlar hlýlega á móti farþegunum.

Um Voigt Travel

Voigt Travel er hollensk ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ævintýraferðum til nyrstu hluta Evrópu. Það er sú ferðaskrifstofa í heiminum sem býður upp á flest bein flug til heimskautasvæðisins í Evrópu. Voigt Travel býður upp á ferðir til átta áfangastaða í Lapplandi í Finnlandi og Svíþjóð, í Norður-Noregi og á Íslandi, bæði á sumrin og veturna, sem gerir þetta svæði sífellt aðgengilegra fyrir ferðamenn sem vilja upplifa eitthvað sérstakt á ósnortnum áfangastað. Voigt Travel vill verða númer eitt á Norðurlöndunum, og flugferðum og samstarfsaðilum þess í Norður-Evrópu fjölgar með ári hverju.

„Við bjóðum Voigt Travel og viðskiptavini þeirra velkomna til Norðurlands. Með opnun þessarar nýju gáttar til Íslands um flugvöllinn á Akureyri býðst ferðamönnum nýr og spennandi valkostur þegar þeir heimsækja landið,“ segir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri á Markaðsstofu Norðurlands.

„Með því að lenda á miðju Norðurlandi bjóðast tækifæri til að sjá marga fallegustu staði Íslands og upplifa norðurslóðir í sinni tærustu mynd, allt frá öflugasta fossi Evrópu og yfir í hvalaskoðun við Heimskautsbauginn.

Vikulegt flug Transavia fyrir Voigt Travel milli Rotterdam og Akureyrar í sumar skiptir sköpum fyrir okkur og þróun okkar sem áfangastaðar. Við erum mjög ánægð með samstarfið við Voigt Travel sem veitir gestum okkar tækifæri til að komast í tæri við alla þá ósviknu og spennandi upplifun sem Norðurland hefur upp á að bjóða.“