Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Líflegar umræður á fundi með Icelandair

Icelandair og Markaðsstofa Norðurlands stóðu fyrir umræðufundi um tengiflug flugfélagsins á milli Akureyrar og Keflavíkur, sem hefst í október og verður í boði út nóvember. Á fundinn komu ýmsir gestir úr ferðaþjónustu og frá sveitarfélögum á Norðurlandi, til að ræða um tækifæri og áskoranir í þessu verkefni.

Icelandair og Markaðsstofa Norðurlands stóðu fyrir umræðufundi um tengiflug flugfélagsins á milli Akureyrar og Keflavíkur, sem hefst í október og verður í boði út nóvember. Á fundinn komu ýmsir gestir úr ferðaþjónustu og frá sveitarfélögum á Norðurlandi, til að ræða um tækifæri og áskoranir í þessu verkefni.

„Það er alltaf gott að koma norður og ennþá betra að koma og eiga virkt og gott samtal um tækifæri ferðaþjónustunnar og uppbygginu á svæðinu. Við erum mjög spennt fyrir flugi frá Akureyri til Keflavíkur nú seinna á árinu og finnum fyrir miklum áhuga frá farþegum erlendis frá að koma á Norðurland. Einnig leggjum við mikið uppúr að læra af reynslu fyrri ára og bjóða upp á gott og endurbætt ferðalag fyrir fólk sem vill fara frá Akureyri út í heim á einum miða,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir hjá Icelandair.

„Fundir á borð við þennan eru mjög mikilvægir til að efla samtal innan ferðaþjónustunnar í landshlutanum og styrkta tengslin á milli ólíkra aðila með sameiginlega hagsmuni. Millilandaflug um Akureyri er eitt það mikilvægasta í þróun ferðaþjónustu á Norðurlandi og því afar ánægjulegt að Icelandair sjái tækifæri í að bjóða upp á þessi tengiflug. Markaðsstofa Norðurlands vonar að bæði ferðaþjónustan og Norðlendingar allir muni nýta þau tækifæri,“ segir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri Flugklasans Air 66N.

Markmiðið með tengifluginu er að auðvelda erlendum farþegum Icelandair að heimsækja Norðurland og sömuleiðis gefa innlendum farþegum þægilegri leið til að fljúga til erlendra áfangastaða. Breytingin felst einna helst í upplifun farþega, sem þurfa ekki að fara í öryggisleit í Keflavík eða koma farangri sjálfir áfram í tengiflugið. Ferlið miðast nú við að allt sé keypt á einum miða og Icelandair ber því ábyrgð á að koma farþegum og farangri á leiðarenda. Markmið Icelandair til framtíðar er að efla alþjóðatenginguna við Akureyri og byggja hana upp í takt við eftirspurn.

Í lok ágúst verður haldinn sérstakur Fjölskyldudagur Icelandair, þar sem fólki verður boðið að koma og kynna sér starfsemi flugfélagsins og þjónustuna sem er í boði. Sá dagur verður sérstaklega auglýstur þegar nær dregur.