Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samgönguþing Markaðsstofu Norðurlands - Skráning og dagskrá

Samgönguþing Markaðsstofu Norðurlands verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember 2015 í Hofi á Akureyri. Samgöngur eru forsenda fyrir uppbyggingu og vexti ferðaþjónustu á Norðurlandi og grunnurinn að því að markmið um dreifingu ferðamanna náist.

Samgönguþing Markaðsstofu Norðurlands verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember 2015 í Hofi á Akureyri. Samgöngur eru forsenda fyrir uppbyggingu og vexti ferðaþjónustu á Norðurlandi og grunnurinn að því að markmið um dreifingu ferðamanna náist. 

Á samgönguþingi MN verður fjallað um samgöngur í víðu samhengi, á landi og flugsamgöngur. Fjölgun ferðamanna hefur verið hröð undanfarin ár sem hefur skapað mikil tækifæri. Aukinn fjöldi ferðamanna að sumri og vetri kallar á nýjar áherslur í samgöngumálum. Við hvetjum alla sem tengjast ferðaþjónustunni að mæta og ræða þau brýnu málefni sem verða tekin fyrir á fundinum.

Skráning á samgönguþing MN 

Samgönguþing Markaðsstofu Norðurlands

Vegir, flug og ferðaþjónusta

Hofi Akureyri, fimmtudaginn 19. nóvember 2015 

 

Dagskrá hefst kl. 13:30

Setning samgönguþings MN   Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri

Erindi  Birna Lárusdóttir formaður samgönguráðs

Áherslur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi   Hjalti Páll Þórarinsson verkefnastjóri MN og flugklasans Air66N

Flugrúta sem nær lengra   Þórir Garðarsson stjórnarformaður og eigandi Gray Line Iceland

Vegasamgöngur og ferðaþjónusta til framtíðar   Hreinn Haraldsson vegamálastjóri

Pallborðsumræður 

15:00 – 15:30  Kaffihlé

Innanlandsflug – lífæð almenningssamgangna   Jón Karl Ólafsson framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia

Akureyri International Airport   Hjördís Þórhallsdóttir umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi

Samskipti við flugrekstraraðila   Ingvar Örn Ingvarsson verkefnastjóri hjá Íslandsstofu

Icelandair, þróun og stefna   Helgi Már Björgvinsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair

Pallborðsumræður   

17:00  Þingslit – Léttar veitingar í boði Akureyrarbæjar

 

Fundarstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands