Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Umræðufundur með Icelandair um flug milli Akureyrar og Keflavíkur

Föstudaginn 30. júní klukkan 9:30 verður haldinn fundur um alþjóðatengingu Icelandair frá Akureyrarflugvelli.

Föstudaginn 30. júní klukkan 9:30 verður haldinn fundur um alþjóðatengingu Icelandair frá Akureyrarflugvelli.

Fulltrúum samstarfsfyrirtækja, sveitastjórnarfulltrúum og fólki sem tengist ferðaþjónustu er boðið á fundinn og markmiðið er að ræða þau tækifæri sem felast í flugi milli Akureyrar og Keflavíkur.

Fulltrúar Icelandair munu halda stutta kynningu og að henni lokinni verður opnað á umræður.

Fundurinn fer fram á Hótel Kea á Akureyri .

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, skráning fer fram hér: https://www.northiceland.is/is/mn/taekifaeri-i-flugi-milli-akureyrar-og-keflavikur