Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vinnustofur með Voigt Travel í Eyjafjarðarsveit

Hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel, sem hefur staðið fyrir leiguflugi til Akureyrar síðan 2019, mun í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Flugklasann Air 66N halda vinnustofur í Eyjafirði.

Hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel, sem hefur staðið fyrir leiguflugi til Akureyrar síðan 2019, mun í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Flugklasann Air 66N halda vinnustofur í Eyjafirði 23. og 24. nóvember n.k. Vinnustofurnar eru ætlaðar þeim ferðaþjónustufyrirtækjum sem vilja læra um hollenska ferðamenn og styrkja kynni sín við Voigt Travel. Skilyrði fyrir þátttöku er að fyrirtækið sé samstarfsfyrirtæki MN.

Voigt Travel hefur haldið sambærilegar vinnustofur á öðrum áfangastöðum sínum með góðum árangri, þar á meðal hér árið 2019. Þær samanstanda annars vegar af samskiptanámskeiði, sem er í höndum breska sérfræðingsins Duncan Holmes og snýr að því hvernig við komum fram og samskiptum við gesti okkar (communication training). Hins vegar er um að ræða kynningu frá Voigt Travel á hollenska markaðinum og markaðsáherslum Voigt Travel. Einnig gefst þátttakendum tækifæri á að spjalla beint við fulltrúa Voigt Travel um einstaka vörur eða þjónustuframboð.

Gert er ráð fyrir að hvor vinnustofa standi yfir frá kl 9:00-17:00, en þær verða haldnar dagana 23. og 24. nóvember n.k. á Lamb-Inn í Eyjafjarðarsveit. Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á heimasíðu MN, tengil á skráningarformið er að finna hér. Vinsamlegast athugið að við skráninguna þarf að tilgreina hvorn daginn þið viljið taka þátt (vinnustofurnar eru eins báða dagana – ekki skiptir máli hvor dagurinn er valinn). Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því hvetjum við áhugasama um að skrá sig sem fyrst. Jafnframt verður til að byrja með aðeins tekið við einni skráningu frá hverju fyrirtæki. Ef fyrirtæki óska eftir að senda fleiri fulltrúa er hægt að geta þess í athugasemdum við skráninguna og viðbótarskráningum verður bætt við eftir því sem pláss leyfir.

Kostnaður við þátttöku á vinnustofunum er 10.000 kr. á þátttakanda, en innifalið í því eru morgunverður, hádegisverður og kaffihressing.

Smelltu hér til að skrá þig