Botnsvatn
Botnsvatn er fallegt stöðuvatn skammt suðaustan við Húsavík og vinsælt útivistarsvæði meðal heimamanna og gesta. Vatnið er 1,05 km² að flatarmáli og liggur í um 130 metra hæð yfir sjávarmáli. Aðkoman er auðveld en aðeins tekur nokkrar mínútur að aka frá miðbæ Húsavíkur upp að vatninu.
Frá Botnsvatni fellur Búðará sem rennur í gegnum Húsavík á leið sinni til sjávar. Umhverfi vatnsins einkennist af fallegri náttúru og friðsælu andrúmslofti sem gerir það að vinsælum stað til göngu, útiveru og náttúruskoðunar.
Vinsæl gönguleið liggur hringinn í kringum vatnið og er um 5,4 kílómetra löng. Einnig er hægt að ganga frá Skrúðgarði á Húsavík eftir merktum göngustíg sem fylgir Búðará upp að vatninu. Á leiðinni gefst tækifæri til að njóta útsýnis yfir Húsavík, Skjálfanda og nærliggjandi náttúru.