Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Herðubreið

Herðubreið er eitt þekktasta fjall Íslands og hefur lengi verið kölluð drottning íslenskra fjalla. Fjallið rís 1.682 metra yfir sjávarmáli upp úr víðáttum Ódáðahrauns og er þekkt fyrir reglulega lögun sína, hreinar línur og tignarlegt yfirbragð. Herðubreið var valin þjóðarfjall Íslands árið 2002 og er eitt helsta kennileiti hálendisins.

Gönguleið liggur á tind fjallsins, en leiðin er brött og víða laus í sér. Aðeins reyndir göngumenn ættu að leggja upp í tindgöngu. Frá fjallinu er víðsýnt yfir hálendið og nærliggjandi öræfi.

Vegurinn að Herðubreið er aðeins opinn yfir sumartímann og er fjallið því fyrst og fremst áfangastaður þeirra sem ferðast um hálendi Íslands. 

Herðubreið

Herðubreið

Herðubreið er eitt þekktasta fjall Íslands og hefur lengi verið kölluð drottning íslenskra fjalla. Fjallið rís 1.682 metra yfir sjávarmáli upp úr víðá
Þorsteinsskáli - Ferðafél. Akureyrar/FÍ

Þorsteinsskáli - Ferðafél. Akureyrar/FÍ

Skáli Ferðafélags Akureyrar, Þorsteinsskáli er í Herðubreiðarlindum, um 4 km austan við þjóðarfjallið Herðubreið. Aka þarf yfir tvö vöð á leið úr Mýva
Herðubreiðarlindir

Herðubreiðarlindir

Við rætur Herðubreiðar eru Herðubreiðarlindir sem eru af mörgum taldar einn fegursti bletturinn á öræfum landsins, einkum þó vegna útsýnis og andstæðn