Apótek Guesthouse er staðsett við göngugötuma í hjarta Akureyrar. Gistiheimilið skartar 17 rúmgóðum herbergjum auk fullbúinni 80m² íbúð með stórum svölum sem hýsir 5-7. Opið rými er á 4. hæð hússins þar sem finna má eldhús með aðstöðu til að útbúa léttar veigingar, borðstofu, sjónvarpsaðstöðu og svalir. Frítt þráðlaust internet (Wi-Fi) í öllu húsinu.
Morgunmat er hægt að bæta við dvölina. Apótek Guesthouse býður upp á morgunmat í samstarfi við kaffihús í grenndinni. Einnig er
frábært úrval veitingastaða og kaffihúsa við gistiheimilið sem gestir geta valið úr. Sundlaug Akureyrar er í göngufjarlægð, þá er menningarhúsið Hof rétt hjá og tónleikastaðurinn Græni hatturinn örfáum metrum frá Apótek Guesthouse.
Herbergin okkar eru staðsett á 2. og 3. hæð hússins. Val stendur á milli herbergja með eigin baðaðstöðu fyrir þá sem kjósa meira næði og herbergja með sameiginlega baðaðstöðu. Íbúð á 4. hæð leigist sem ein eining og getur hýst stærri hópa sem ferðast saman. Íbúðin er með einkaaðgang að stórum svölum sem snúa til suðurs þar sem hægt er að njóta veðurblíðu Norðurlands. Hópar eru velkomnir!