Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Áskaffi góðgæti

- Þjónusta

Verið velkomin í félagsheimilið Héðinsminni í Skagafirði þar sem Áskaffi góðgæti býður matseðil fyrir hópa sem eru áhugasamir um að bragða heimilislegan mat.  

Héðinsminni er við hringveginn (þjóðveg nr. 1) í Blönduhlíðinni, um 10 mín akstur frá Varmahlíð þegar ekið er austur um til Akureyrar.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur þar sem við munum leggja áherslu á að bjóða góðgæti sem kitlar bragðlaukana í notalegu umhverfi.  

Hafið endilega samband ef þið hafið áhuga á að koma með hópinn ykkar í hádegismat, miðdagskaffi eða kvöldmat. Veitingar þarf að panta með fyrirvara.
Lágmarksfjöldi í hóp er sex manns.
Frekari upplýsingar: https://askaffi.is/  

Einnig bjóðum við upp á fjölbreyttar dagsferðir þar sem gestir fá að kynnast ríkri matarmenningu héraðsins. Á ferð okkar um matarslóðir Skagafjarðar heimsækjum við bændur og handverkshús sem leggja metnað sinn í að nýta ferskt hráefni úr heimabyggð, allt frá hágæða lambakjöti yfir í sultur og osta. Ferðirnar eru bæði ánægjulegar fyrir bragðlaukana og jafnframt veita þær dýpri innsýn í sögu og hefðir svæðisins.
Nánari upplýsingar um ferðirnar má nálgast hér: https://askaffi.is/matarslodir-skagafjardar/  

Verið hjartanlega velkomin í sveitina. 

Áskaffi góðgæti

Áskaffi góðgæti

Verið velkomin í félagsheimilið Héðinsminni í Skagafirði þar sem Áskaffi góðgæti býður matseðil fyrir hópa sem eru áhugasamir um að bragða heimilisleg
Kakalaskáli

Kakalaskáli

Í Kakalaskála í Kringlumýri, Skagafirði, er sögu- og listasýning með hljóðleiðsögn frá átakatímum 13. aldar með áherslu á líf Þórðar kakala. Sýninguna

Aðrir (1)

Ferðaþjónustan Syðstu-Grund Syðsta-Grund 560 Varmahlíð 453-8262