Tjaldsvæði á Laugum í Reykjdal er staðsett við íþróttavöllinn á Laugum. Sundlaugin á Laugum og 6 holu golfvöllur eru í göngufæri við tjaldsvæðið.
Í vallarhúsinu eru flestir þjónustupunktar tjaldstæðisins, en þar er að finna salerni, sturtur, þvottavél og þurrkara. Á efri hæðinni er svo eldunaraðstaða, borð, stólar og sófar. Þar er einnig aðstaða fyrir svefnpokagistingu.