Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gestastofa og upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs í Ásbyrgi, Gljúfrastofa

Dettifoss er aflmesti foss Íslands og vatnsmesti foss í Evrópu. Hann er 44 metra hár og rúmlega 100 m breiður foss í Jökulsá á Fjöllum sem er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Hvergi upplifir maður smæð mannsins eins skýrt og við þennan mikilfenglega foss.

Vestan megin Jökulsár er vegur 862. Hann er með bundið slitlag og fær öllum bílum að Dettifossi. Það er þó ekki  vetrarþjónusta við hann enn sem komið er. Auðvelt er að komast að Vesturdal frá vegi 862.

Frá Dettifossi og áfram suður að þjóðvegi 1 er malbikaður vegur en án vetrarþjónustu frá 1.jan til 30. mars. Dettifoss er hluti af Demantshringnum, sjáðu hann hér www.demantshringurinn.is

Austan megin Jökulsár á Fjöllum er vegur 864. Það er malarvegur sem er aðeins opinn á sumrin er fær öllum bílum en vegfarendur þurfa þó að miða ökuhraða við ástand vegarins hverju sinni. 

Afgreiðslutími í Gljúfrastofu 2023:
16. jan - apr: 11-15 mánudaga til föstudag
maí: 10-16 alla daga
jún - ágú: 9-17 alla daga
sept - okt: 11-16 alla daga
nóv - 15. des: 11-15 virka daga

Til að skoða vefsíðuna okkar, vinsamlegast smellið hér .

Gestastofa og upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs í Ásbyrgi, Gljúfrastofa

Gestastofa og upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs í Ásbyrgi, Gljúfrastofa

Dettifoss er aflmesti foss Íslands og vatnsmesti foss í Evrópu. Hann er 44 metra hár og rúmlega 100 m breiður foss í Jökulsá á Fjöllum sem er hluti af
Ásbyrgi

Ásbyrgi

Ásbyrgi er eitt helsta náttúruundur Íslands og er staðsett í Vatnajökulsþjóðgarði. Lagðir hafa verið göngustígar um svæðið og sett upp lítil upplýsing
Nordic Natura

Nordic Natura

Gullfalleg og vel staðsett 25 m2 stúdíóhús á barmi Ásbyrgis með stórkostlegu útsýni til allra átta. Húsin eru með stílhreinni eldhúsinnréttingu (uppþv
Jökulsárgljúfur

Jökulsárgljúfur

Jökulsárgljúfur tilheyra Vatnajökulsþjóðgarði og umhverfi þeirra hafa heillað margan ferðalanginn. Fossasamtæða Jökulsár á Fjöllum með Selfoss, Dettif
Veggur veitingahús

Veggur veitingahús

Veggur veitingahús er við Dettifossveg í Kelduhverfi, við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs og hinn svokallaða Demantshring. Náttúran umhverfis staðinn státa

Aðrir (1)

Ásbyrgi veitingar og verslun Kelduhverfi 671 Kópasker 465-2260