Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bæjardyrahúsið á Reynistað

Á Reynistað í Skagafirði er bæjardyrahús sem er það eina sem varðveist hefur af bæ þeim sem Þóra Björnsdóttir lét reisa eftir mikinn bruna sem þar varð árið 1758. Þóra var ekkja Halldórs Brynjólfssonar Hólabiskups og hélt hún Reynistaðarklaustursumboð að manni sínum látnum 1753 og til dauðadags 1767.

Húsið er opið gestum á eigin ábyrgð daglega 8-18. Vinsamlegast gangið vel um.

Bæjardyraportið er með stafverksgrind af þeirri gerð sem víða tíðkaðist hér á landi á 18. öld þegar áhrifa bindingsverks var tekið að gæta. Öll smíði ber þess vitni að vel hafi verið til hússins vandað í sinni tíð og eru margir viðanna prýddir strikum.

Gömlu bæjarhúsin á Reynistað voru tekin niður skömmu eftir 1935 en þessu húsi var leyft að standa áfram. Um 1960 var það flutt til og byggð utan um það steinsteypt skemma. Í henni var portið fram til 1999 en þá voru viðirnir teknir niður og lagfærðir. Bæjardyraportið var síðan reist skammt frá upphaflegum stað og að því hlaðnir torfveggir og torf sett á þakið. 

Bæjardyrahúsið á Reynistað

Bæjardyrahúsið á Reynistað

Á Reynistað í Skagafirði er bæjardyrahús sem er það eina sem varðveist hefur af bæ þeim sem Þóra Björnsdóttir lét reisa eftir mikinn bruna sem þar var
Tjaldsvæðið v/ Hegranes

Tjaldsvæðið v/ Hegranes

Einkatjaldstæði fyrir hópa!  Frábært svæði fyrir ættarmótið, afmælið, brúðkaupið eða vinahittinginn. Húsið sem er um 270 fm, tekur um 110 manns í sæti
Glaumbær í Skagafirði

Glaumbær í Skagafirði

Bærinn í Glaumbæ er samstæða þrettán húsa og á bæjarhólnum, þar sem bærinn stendur, hafa hús staðið í mörg hundruð ár. Glaumbær er torfríkasti bær lan

Aðrir (5)

Ferðaþjónustan Glæsibær Skagafjörður 551 Sauðárkrókur 892-5530
Gestahús í Tröð Tröð 551 Sauðárkrókur 453-5225
Karuna Litla Gröf 551 Sauðárkrókur 6181917
Keldudalur Hegranesi 551 Sauðárkrókur 846-8185
NW Adventures ehf. Glaumbær 560 Varmahlíð 867-8133