Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Tjaldsvæðið Raufarhöfn

- Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið á Raufarhöfn er staðsett á rólegum stað við tjörnina, í stuttri göngufjarlægð frá þjónustu þorpsins. Þar er góð aðstaða fyrir tjaldgesti, hjólhýsi og húsbíla og hentar svæðið vel sem viðkomustaður fyrir þá sem vilja kanna Melrakkasléttu og nágrenni.

Á tjaldsvæðinu eru salerni, vaskur, borð og bekkir auk rafmagnstenginga fyrir hjólhýsi og húsbíla. Einnig er auka tjaldsvæði á íþróttavellinum sem hentar vel stærri farartækjum, en þar er hvorki salernisaðstaða né rafmagn.

Við hlið tjaldsvæðisins er íþróttamiðstöð þar sem gestir geta nýtt sundlaug, heitan pott, gufu og líkamsræktaraðstöðu. Einnig er hægt að nota þvottavél og þurrkara gegn gjaldi.

Öll helsta þjónusta Raufarhafnar er í göngufæri, þar á meðal matvöruverslun, eldsneytisafgreiðsla, apótek, heilsugæsla, pósthús, gisting, veitingastaðir og kaffihús.

Raufarhöfn er nyrsta þorp Íslands og rétt undan ströndinni liggur heimskautsbaugurinn. Skammt frá þorpinu stendur Heimskautsgerðið (Arctic Henge), einstakt útilistaverk sem sæk ir innblástur í íslenska menningu, bókmenntir og stjörnufræði og er einn af áhugaverðustu áfangastöðum svæðisins. 

Tjaldsvæðið Raufarhöfn

Tjaldsvæðið Raufarhöfn

Tjaldsvæðið á Raufarhöfn er staðsett á rólegum stað við tjörnina, í stuttri göngufjarlægð frá þjónustu þorpsins. Þar er góð aðstaða fyrir tjaldgesti,
Sundlaugin Raufarhöfn

Sundlaugin Raufarhöfn

Opnunartími: Sumaropnun júní-ágúst: Mánud-föstud 14:00-19:30 laugard-sunnud 12:00-16:30   VetraropnunMán, mið, fös 17:00-19:30Laugardaga 14:00-16:30 
Raufarhöfn

Raufarhöfn

Á austurströnd Melrakkasléttu er Raufarhöfn, nyrsta alla þorpa á  Íslandi. Hvergi á Íslandi verður vornóttin bjartari né vetrardagurinn myrkari. Heims
Kaupfélagið Raufarhöfn

Kaupfélagið Raufarhöfn

Veitingahús og gallerí.
Vitinn á Raufarhöfn

Vitinn á Raufarhöfn

Lítill vegur liggur frá Raufarhöfn og að vitanum sem stendur á háum klettum. Þar er bekkur svo hægt er að tilla sér og jafnvel njóta þess að borða nes
Gistihúsið Hreiðrið

Gistihúsið Hreiðrið

Á Raufarhöfn við heimskautsbaug er þetta hlýlega gistihús. Uppbúin rúm í eins til þriggja manna herbergjum. Sameiginlegar snyrtingar með sturtum. Á bá
Hótel Norðurljós

Hótel Norðurljós

Hótel Norðurljós hefur verið hluti af sögu Raufarhafnar síðstliðin 40 ár. Það var byggt á árunum 1957-8, sem verbúð (síldarbraggi), til að hýsa síldar
Heimskautsgerði

Heimskautsgerði

Heimskautsgerðið á Melrakkaási við Raufarhöfn er einstakt listaverk og minnismerki sem sækir innblástur í norræna goðafræði, stjörnufræði og samspil s

Aðrir (1)

Arctic Angling Hafnarbraut 2 675 Raufarhöfn 780-6995