Heimskautsgerði
Heimskautsgerðið á Melrakkaási við Raufarhöfn er einstakt listaverk og minnismerki sem sækir innblástur í norræna goðafræði, stjörnufræði og samspil sólarljóss, skugga og árstíðaskipta. Gerðið er oft líkt við Stonehenge, en það er hannað til að fanga sólargeisla, varpa skuggum og skapa samspil ljóss og forms í takt við árstíðir og gang sólarinnar.
Hugmyndin að Heimskautsgerðinu er sprottin úr vangaveltum Erlings Thoroddsen um hvernig mætti nýta hina endalausu víðáttu, miðnætursólina og heimskautsbirtuna sem einkenna svæðið. Listamaðurinn Haukur Halldórsson þróaði hugmyndina áfram og hannaði mannvirkið með vísunum í dvergatal Völuspár og fornan sagnaheim.
Heimskautsgerðið er um 50 metrar í þvermál og hlið þess snúa til höfuðáttanna. Í miðju þess rís súla sem gegnir lykilhlutverki í samspili ljóss og skugga. Innan gerðisins má einnig finna ýmis táknræn verk sem tengjast tíma, áttum, náttúruöflum og stjörnuhimninum.
Á hæðinni fyrir ofan Raufarhöfn býður Heimskautsgerðið upp á víðáttumikið útsýni yfir hafið og víðerni Norðausturlands.
Mannvirkið er enn í uppbyggingu en hefur þegar skipað sér sess sem einn af áhugaverðustu menningar- og áfangastöðum Norðurlands.
Nánari upplýsingar um hugmyndafræði Heimskautsgerðisins er að finna á heimasíðunni www.heimskautsgerdi.is.
Heimskautsgerðið er 50 km frá Kópaskeri, 54 km frá Þórhöfn og 154 km frá Húsavík. Hér má sjá leiðina.