Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ársfundur Norðurstrandarleiðar verður í nóvember

Ársfundur Norðurstrandarleiðar verður haldinn á Hótel Natur í Eyjafirði, mánudaginn 14.nóvember kl.10:30-15:00. Fyrri partur fundarins er opinn öllum sem áhuga hafa á leiðinni.

Ársfundur Norðurstrandarleiðar verður haldinn á Hótel Natur í Eyjafirði, mánudaginn 14.nóvember kl.10:30-15:00.

Fyrri partur fundarins er opinn öllum sem áhuga hafa á leiðinni og er dagskáin í grófum dráttum eftirfarandi:

  • Hver er staðan á verkefninu og hvað hefur verið gert síðasta árið
  • Innviðauppbygging og hvaða máli hún skiptir fyrir leiðina
  • Heimasíðan og uppfærsla á henni
  • Samskipti okkar við ferðaskrifstofur og blaðamenn
  • Breytingar á hetjuupplifunum

Einnig mun Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustunnar hjá Íslandsstofu, halda kynningu. Hún mun fara yfir sýningar og vinnustofur, hvernig þig getið nýtt ykkur þeirra starf og komið ykkur sem best á framfæri.

Eftir hádegi munu svo skráðir meðlimir og þeir sem vilja gerast nýjir meðlimir hittast og taka spjallið.

  • Hvernig sjáum við fyrir okkur að Norðurstrandarleið þróist áfram?
  • Hvað viljið þið fá útúr þessu verkefni og hvað má bæta?

Nýtum tækifærið til að hittast og kynnast öðrum betur því samstarf skiptir svo miklu máli, stór partur af því að vera meðlimur í Norðurstrandarleið er að hitta aðra meðlimi, kynnast þeim og skiptast á góðum ráðum og reynslusögum.

Smelltu hér til að skrá þig

Ef einhverjar spurningar vakna, má hafa samband við Katrínu Harðardóttir á kata@nordurland.is