Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Alþjóðatenging á milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar

Fyrstu farþegum í alþjóðatengingu Icelandair frá Akureyri til Keflavíkurflugvallar var boðið upp á léttar kaffiveitingar á Akureyrarflugvelli þegar flug á milli vallanna hófst að nýju á mánudag.
Mynd: Skapti Hallgrímsson/akureyri.net
Mynd: Skapti Hallgrímsson/akureyri.net

Fyrstu farþegum í alþjóðatengingu Icelandair frá Akureyri til Keflavíkurflugvallar var boðið upp á léttar kaffiveitingar á Akureyrarflugvelli þegar flug á milli vallanna hófst að nýju á mánudag. Alþjóðatengingin stendur til boða á tímabilinu 16. október til 30. nóvember 2023. Á tímabilinu verður flogið þrisvar sinnum í viku frá Akureyri til Keflavíkur, á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum klukkan 5:50 að morgni og þrisvar sinnum í viku frá Keflavík til Akureyrar á miðvikudögum klukkan 21:20 og föstudögum og sunnudögum klukkan 17:15. Með fluginu verður auðvelt að tengja við fjölda áfangastaða Icelandair í Evrópu.

Þar sem flugið er alþjóðatenging fer öryggisleit fram á Akureyrarflugvelli og einungis verður hægt að bóka það samhliða millilandaflugi með Icelandair. Vegna styttri afgreiðslutíma í öryggisleit og ferðatíma á flugvöll munu íbúar Akureyrar og nágrennis og ferðamenn þaðan geta lagt af stað á flugvöllinn á svipuðum tíma og íbúar höfuðborgarsvæðisins.

Ákveðið var að hefja flugið utan háannar þar sem gistirými á Norðurlandi er af skornum skammti yfir sumartímann. Markmið Icelandair til framtíðar er að efla alþjóðatenginguna við Akureyri og byggja hana upp í takt við eftirspurn.

Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair:

„Alþjóðatengingin frá Akureyri hefur strax fengið mjög góðar viðtökur, enda mun hún stytta ferðatíma Norðlendinga til áfangastaða Icelandair í Evrópu umtalsvert. Með tengingunni viljum við einnig stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið og byggja upp aukna eftirspurn eftir ferðum til Akureyrar, sérstaklega yfir vetrartímann. Það er gaman að segja frá því að þau sem nýttu fyrsta flugið frá Akureyri á mánudag voru á leið vítt og breytt um Evrópu, til Berlínar, Brussel, Frankfurt, Tenerife, Dublin, London, Kaupmannahafnar og Helsinki.“