Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Boðun aðalfundar MN 2019

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 7. maí 2019 kl 10-12. Fundurinn verður haldinn á Fosshótel Húsavík.

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 7. maí 2019 kl 10-12. Fundurinn verður haldinn á Fosshótel Húsavík.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt skipulagsskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Afgreiðsla ársreiknings
  3. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar
  4. Stjórnarkjör
  5. Kjör endurskoðenda
  6. Starfshættir stjórnar
  7. Önnur mál 

Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Miða skal við að tveir stjórnarmenn og einn varamaður komi af Norðurlandi vestra og þrír stjórnarmenn og einn til vara frá Norðurlandi eystra. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kosið um tvo stjórnarmenn og er það raunin í ár og hitt árið um þrjá stjórnarmenn.

Á fundinum verður kosið um stjórnarsæti Unnar Valborgar Hilmarsdóttur(NV) Arngríms Arnasonar(NA) og Eddu Hrundar Guðmundsdóttur(NA) þar sem tveggja ára kjörtímabili þeirra er að ljúka. Einnig er kosið um sæti varastjórnarmannanna Þórdísar Bjarnadóttur(NA) og Tómasar Árdal(NV). Aðrir stjórnarmenn eru Baldvin Esra Einarsson, formaður(NA) og Viggó Jónsson (NV).

Framboð frá samstarfsfyrirtækjum til stjórnar þurfa að koma fram í síðasta lagi fyrir upphaf aðalfundar og eru áhugasamir beðnir að tilkynna framboð til framkvæmdastjóra. Umboð vegna stjórnarkjörs mættu vinsamlegast berast fyrir aðalfund á halldor@nordurland.is

Á aðalfundi fer hvert samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar með atkvæði samkvæmt sínum gjaldflokki, 1 atkvæði fyrir lægsta flokk, 2 atkvæði fyrir næstlægsta flokk og svo framvegis upp í 5 atkvæði fyrir efsta gjaldflokk. Skilyrði þess að samstarfsfélög Markaðsstofu Norðurlands geti nýtt atkvæði sín á aðalfundi er að þau séu skuldlaus við Markaðsstofu Norðurlands.

Skráning á aðalfund fer fram hér fyrir neðan.

https://www.northiceland.is/is/moya/formbuilder/index/index/skraning-a-adalfund-og-vorradstefnu

Nánari upplýsingar um MN er að finna hér http://www.nordurland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi

Skipulagsskrá MN má sjá hér www.nordurland.is/static/files/PDF/Starfsemi/markadsstofanordurlands-skipulagsskra-20.mai14.pdf 

Staðfest breyting frá Sýslumanninum á Sauðárkróki v/ Markaðsstofu Norðurlands 20.06.2014 má sjá hér https://www.northiceland.is/static/files/PDF/Starfsemi/auglysing-breyting-markadsstofa-nordurlands.pdf