Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bongóblíða í september

Útlit er fyrir að komandi helgi verði veðursæl á Norðurlandi, ef marka má veðurspá frá Veðurstofu Íslands.

Útlit er fyrir að komandi helgi verði veðursæl á Norðurlandi, ef marka má veðurspá frá Veðurstofu Íslands. Í hugleiðingu veðurfræðings í dag, 30. ágúst, segir að sólríkt verði á Norður- og Austurlandi um helgina og gæti hitinn farið yfir 20 stig þar sem best lætur. Slíkt er alltaf kærkomið og þá sérstaklega í september, þó ekki sé hægt að kvarta undan slæmu veðri í sumar á Norðurlandi. 

Það er því kjörið tækifæri að skella sér norður um helgina í góða veðrið!