Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Demantshrings fundi frestað til 10. janúar

Fundinum um nýtt vörumerki Demantshringsins, sem átti að vera á morgun í Mývatnssveit, hefur verið frestað til föstudagsins 10. janúar næstkomandi.

Fundinum um nýtt vörumerki Demantshringsins, sem átti að vera á morgun í Mývatnssveit, hefur verið frestað til föstudagsins 10. janúar næstkomandi.

Þeir sem höfðu þegar skráð sig á fundinn þurfa að gera það að nýju, hér má finna nýtt eyðublað: https://www.northiceland.is/is/moya/formbuilder/index/index/skraning-a-fund-diamond-circle-10-januar

Fundurinn verður haldinn á Sel-Hótel Mývatn, frá klukkan 11:30-13:00. Ráðgjafafyrirtækið Cohn & Wolfe hefur hannað nýtt vörumerki fyrir leiðina og mun Ingvar Örn Ingvarsson, sérfræðingur, fara yfir það ferli á fundinum og kynna vörumerkið. Þá munu verkefnastjórarnir Björn H. Reynisson og Katrín Harðardóttir fara yfir stöðuna á þróun Demantshringsins og næstu skref.

Ekkert kostar inn á fundinn og boðið verður upp á súpu og brauð.

Fundurinn verður í beinni útsendingu á Facebook síðu Markaðsstofu Norðurlands.