Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ferðaþjónusta í Þingeyjarsveit - stöðugreining og aðgerðaáætlun

Markaðsstofa Norðurlands (MN), í samstarfi við Mývatnsstofu og sveitarfélagið Þingeyjarsveit, hefur á undanförnum mánuðum unnið að verkefni sem felur í sér greiningu á stöðu ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit, ásamt vinnslu aðgerðaáætlunar til frekari þróunar greinarinnar í sveitarfélaginu.
Markaðsstofa Norðurlands (MN), Mývatnsstofa og Þingeyjarsveit boða til kynningarfundar um niðurstöður verkefnis um greiningu á stöðu ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit. Að undanförnu hefur þessi greining verið unnin ásamt vinnslu aðgerðaáætlunar til frekari þróunar greinarinnar í sveitarfélaginu.

Fundurinn verður haldinn 28. október klukkan 13, á Teams.
Opin vinnustofa var haldin í maí í tengslum við verkefnið. Markmið hennar var að fá fram sjónarmið fulltrúa ferðaþjónustufyrirtækja í Þingeyjarsveit, íbúa, sem og fulltrúa sveitarstjórnar, til frekari uppbyggingu og markaðssetningu greinarinnar. MN hefur nú tekið saman niðurstöður þessa verkefnis sem byggja ekki síst á þeim sjónarmiðum er komu fram á vinnustofunni.
Fundurinn verður haldinn á Teams og er opinn öllum áhugasömum. Í framhaldi af þessum fundi verður skýrsla verkefnisins birt á vefsíðum aðila verkefnisins.
Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á kynningarfundinum. Fundarhlekkur og fundargögn verða send til skráðra þátttakenda fyrir fundinn.


Skráning