Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ferðaþjónusta til framtíðar - Vinnustofa í Hofi

Í tilefni nýrrar herferðar Íslandsstofu býður Markaðsstofa Norðurlands, í samstarfi við Íslandsstofu samstarfsfyrirtækjum til vinnustofu um Bretlandsmarkað og sölumiðað markaðsstarf. Íslandsstofa leiðir vinnustofuna sem hluta af verkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar og fer hún fram í Hofi á Akureyri fimmtudaginn 17. september frá kl 13 til 15.

19.500 sæti frá Bretlandi í vetur – hvernig breytum við þeim í bókanir?

Beint flug easyJet frá London og Manchester til Akureyrar þýðir um 19.500 staðfest sæti í vetur. Það er tækifæri sem skiptir svæðið miklu máli. Markaðssetning Íslands í Bretlandi undir merkjum Visit Iceland byggir upp eftirspurn á þessum mörkuðum, en það er hjá fyrirtækjunum sjálfum sem sú eftirspurn breytist í bókanir og tekjur. Um það snýst vinnustofan: við förum yfir nýjustu gögn um breska markaðinn, markaðsstefnuna sem unnið er eftir og hvernig fyrirtæki á svæðinu geta fylgt henni eftir í eigin sölu- og markaðsstarfi.
 
Við horfum bæði á neytendamarkaðinn og viðskiptatengslin. Farið verður yfir niðurstöður nýrrar ferðaheildsalakönnunar þar sem staða Norðurlands er sérstaklega dregin fram og hvað þarf til að áhugi erlendra söluaðila skili sér í sölu. Flugið í vetur er upphafspunkturinn, en samtalið nýtist líka í sölu- og markaðsstarfi svæðisins til lengri tíma.
 
Vinnustofan nýtist best þeim sem sinna markaðsmálum og sölu innan fyrirtækjanna. Birtingaraðilar og auglýsingastofur sem þjónusta þessi fyrirtæki eru einnig velkomin.
 
Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg.
 
 
Við hlökkum til að sjá ykkur í Hofi.