Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Flugvél Kontiki lenti á Akureyri í fyrsta sinn

Flugvél á vegum svissnesku ferðaskrifstofunnar Kontiki lenti á Akureyrarflugvelli í gær, í beinu flugi frá Zurich í Sviss. Flogið verður vikulega á sunnudögum næstu sex vikurnar, en þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á vetrarferðir til Akureyrar frá þessari stærstu borg Sviss.
Mynd frá Isavia.

Flugferðir Kontiki eru frábær viðbót í stækkandi flóru flugferða beint til Akureyrar að vetrarlagi. Um er að ræða leiguflug sem eru með svipuðu sniði og flug á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel, sem hófust árið 2019.
 
Samtal Flugklasans við Kontiki hófst árið 2018, en meiri skriður komst á málin árið 2022. Nú er þetta orðið að veruleika og svissneskir ferðamenn eiga auðveldara með að kynnast Norðurlandi að vetri til, og njóta þess sem vetrarferðaþjónusta á svæðinu snýst um.
 
Það er flugfélagið Edelweiss sem framkvæmir flugið fyrir Kontiki, en Edelweiss býður einnig upp á áætlunarflug í sumar - sjá hér.