Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vestnorden, Bretlandsverkefni og ný þróun mörkuðu árið 2025

Árið 2025 einkenndist af mikilli sókn fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi. Markaðsverkefnin voru stór og á sama tíma hafin vinna við nokkur stór þróunarverkefni sem ætlað er að auka samkeppnishæfni áfangastaðarins.
Viggó Jónsson formaður Markaðsstofu Norðurlands
Viggó Jónsson formaður Markaðsstofu Norðurlands

Árið 2025 einkenndist af mikilli sókn fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi. Markaðsverkefnin voru stór og á sama tíma hafin vinna við nokkur stór þróunarverkefni sem ætlað er að auka samkeppnishæfni áfangastaðarins.

Stærsti viðburðurinn var Vestnorden ferðakaupstefnan sem haldin var á Akureyri í október en á þessum viðburði sem haldinn var í 40 skipti var augljóst að fagmennska, nýsköpun, framsækni og samvinna var einkennandi fyrir norðlenska ferðaþjónustu. Auk fundahalda voru haldnar kynnisferðir þar sem farið var um allt Norðurland með um 250 manns í skipulögðum ferðum.

Markaðsstofan stóð fyrir tveimur vinnustofum í Bretlandi en þær voru haldnar í London, Manchester og Brighton þar sem fyrirtæki að norðan og austan mættu til funda við erlenda kaupendur ásamt jólaveini sem laumaði sér með. Undirbúningur að þessu er sem fyrr gerður í samstarfi við Chris Hagan sem hefur lengi komið að flugverkefnum okkar í Bretlandi. Þessir viðburðir eru ný þróun hjá Markaðsstofunni sem hafa sannarlega sannað gildi sitt og verða unnir áfram. Mikilvægt er að norðlensk fyrirtæki séu sýnileg á vinnustofum og sýningum erlendis og er þetta mikilvægur þáttur í þeirri vinnu.

Í samstarfi við easyJet var Bretlandsflugið eflt til muna og kom hingað áhrifavaldur sem fór í fjögurra daga ferðalag um svæðið til kynningar og skilaði frábæru efni frá svæðinu. Sætaframboð jókst um 93% frá vetrinum á undan og bættust október og apríl við í framboðið. easyJet eins og Kontigi og Voigt Travel sinna öflugri markaðssetningu á Norðurlandi sem skilar sér í aukinni þekkingu á svæðinu.

Fleiri stór verkefni voru unnin til að búa til umfjöllun erlendis og tengja svæðið við erlendar ferðaskrifstofur, skipulagðar voru fjölmiðlaferðir eftir Mid-Atlantic og nokkrar kynnisferðir voru skipulagðar í samstarfi við erlendar ferðaskrifstofur. Heildar verðmæti umfjallana í fjölmiðlum var metið á 1 milljarð, mest var umfjöllunin í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum.

Ef við skoðum síðan þróunarverkefnin þá má nefna að nýr vefur var opnaður fyrir áfangastaðaáætlanir en þar er meðal annars birt talnaefni um Norðurland. Einnig var unnin stöðugreining og aðgerðaáætlun í samstarfi við Þingeyjarsveit sem nú er unnið að því að koma í framkvæmd.

Gönguleiðavefsvæðið okkar var eflt til muna með 17 nýjum leiðum sem kortlagðar voru með stuðningi frá Sóknaráætlun SSNE. Nú eru því 45 leiðir í birtingu og fékkst stuðningur til áframhaldandi vinnu á þessu ári.

Markaðsverkefni fyrir Böðin á Norðurlandi fór í loftið undir merkjunum Böðin – Northern Baths og er áherslan á B2B markaðssetningu.

Hafin var vinna við öflugt markaðsverkefni á Norðurlandi vestra í samstarfi við Sóknaráætlun SSNV og styttist í að til verði nýtt vörumerki sem mun efla kynningu á svæðinu.

Áfram var unnið að þróun og kynningu Norðurstrandarleiðar og Demantshringsins, stóru vörumerkjanna okkar sem vekja mikinn áhuga erlendis.

Vinnufundur var haldinn með Voigt Travel og Kontigi í september og í framhaldinu farið af stað með verkefni um þróun svokallaðra kjarnasvæða en gert er ráð fyrir fimm slíkum kjörnum fyrir ferðamenn á Norðurlandi þar sem markmiðið er að efla þjónustuframboð og auka markaðssetningu.

Markaðsstofan á að venju í miklu samstarfi við aðila í stoðkerfi ferðaþjónustunnar og voru haldnir fræðslufundir með Hæfnisetri ferðaþjónustunnar, samstarfsfundir ferðamálafulltrúa og unnin fjölmörg verkefni með fólki af öllu Norðurlandi í fjölbreyttum verkefnum. Var Markaðsstofan á ferðalagi á Norðurlandi í um 100 daga í 65 ferðum. Við gáfum út 80 þúsund borðkort og 50 þúsund Norðurlandskort. Auk þess komumst við loksins í endanlegt húsnæði að Tryggvabraut 10 eftir að hafa flakkað á milli skrifstofa síðustu árin. Við bjóðum ykkur því velkomin til okkar hvenær sem þið eigið leið hjá hvort sem er á skrifstofuna á Akureyri eða á Blönduósi.

Yfirlit verkefna ársins 2026 má sjá hér Starfsemi MN 2025