Gesturinn í aðalhlutverki
Hvernig upplifa gestir „gæði“ í dag og hvernig er hægt að endurspegla það í daglegu verklagi? Hvað skiptir þá mestu máli þegar kemur að upplýsingum, væntingum og þjónustu?
Þessum spurningum verður svarað á næsta Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina „Gesturinn í aðalhlutverki“ og fer fram þriðjudaginn 17. febrúar kl. 11:00 – 12:00 í beinu streymi á Facebook.
Á fundinum rýnum við í hvernig skýrar upplýsingar, samræmd gæði og stöðug áreiðanleg þjónusta skapa trausta upplifun sem gestir treysta. Fjallað verður um hvernig ferðaþjónustuaðilar geta styrkt samkeppnishæfni sína með því að endurspegla þarfir gesta í verkferlum, menningu og þjálfun starfsfólks.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna, er öllum opinn og aðgengilegur í streymi.
Að þessu sinni fáum við til okkar frábæra fyrirlesara úr ólíkum áttum ferðaþjónustu og atvinnulífs, en það eru meðal annars þau:
- Júlíus Freyr Theodórsson, leiðsögumaður
- Skrokkur í sæti?
- Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi
- Mikilvægi þjónustuveitingar: frá sjúklingi til tæknistjóra
- Ólína Laxdal, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
- Spegill, Spegill: hvernig endurspeglum við þarfir gesta okkar í gæðaþjónustu?
- Fundarstjóri er Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðukona Áfangastaðarins Reykjaness
Skráning hér: https://haefni.is/til-thjonustu-reidubuin/