Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fjölbreyttar gönguleiðir á Norðurlandi

Norðurland býður upp á fjölbreyttar gönguleiðir í landslagi sem tekur sífelldum breytingum. Hér má ganga meðfram ströndum og um grösuga dali, fylgja árfarvegum og gljúfrum eða halda til fjalla og njóta víðsýnis yfir byggðir, firði og óbyggðir. Hvort sem leitað er að stuttri göngu í nágrenninu, góðri dagsleið eða krefjandi fjallgöngu má finna leið við hæfi víðs vegar um landshlutann.

Finndu þína næstu gönguleið

Á vefnum okkar má nú finna 69 gönguleiðir víðs vegar um Norðurland á einum stað. Markmiðið er að auðvelda fólki að finna upplýsingar um leiðirnar, bera þær saman og undirbúa sig áður en lagt er af stað.

Þar er hægt að leita eftir staðsetningu og sía leiðirnar eftir tegund og erfiðleikastigi. Hverri leið fylgja hagnýtar upplýsingar á borð við vegalengd, áætlaðan göngutíma, hækkun og mögulegar hættur, auk korts og hæðarprófíls. Einnig er hægt að hlaða leiðarupplýsingunum niður fyrir síma, snjallúr eða GPS-tæki og hafa þær meðferðis í göngunni.

Skoða gönguleiðir

Gönguleiðir við allra hæfi

Leiðirnar eru jafn fjölbreyttar og landslagið sem þær liggja um. Sumar henta vel í rólegan göngutúr eða kvöldgöngu, á meðan aðrar liggja um dali, meðfram ströndum eða upp á fjallstinda og kalla á meiri tíma og undirbúning.

Hver árstíð gefur landslaginu nýjan svip. Á vorin lifnar náttúran smám saman við, sumarið býður upp á langa og bjarta daga og á haustin taka hlýir litir yfir landslagið. Veturinn getur síðan breytt kunnuglegum slóðum í allt aðra upplifun. Sama gönguleið getur því verið síbreytileg eftir birtu, veðri og árstíma.

Margar leiðir henta til göngu allt árið um kring þegar veður og aðstæður leyfa. Þar má nefna fjölmargar bæjargöngur og leiðir í nágrenni þéttbýlis, auk leiða á borð við Fálkafell á Akureyri, Skútustaðagíga í Mývatnssveit og Höfðann við Grenivík. Það þarf heldur ekki alltaf að leggja upp í langa fjallgöngu þar sem göngutúr eftir vinnu eða nokkurra klukkustunda ferð um helgi getur veitt kærkomið andrými frá amstri dagsins.

Hvort sem markmiðið er að komast aðeins út eftir vinnu, finna góða gönguleið fyrir helgina eða takast á við nýja áskorun ættu flest að geta fundið gönguleið við sitt hæfi.

Góður undirbúningur er hluti af ferðinni

Áður en lagt er af stað er mikilvægt að kynna sér leiðina vel og velja göngu sem hæfir reynslu, getu og aðstæðum hverju sinni. Veður getur breyst hratt og sérstaklega að hausti þarf að hafa í huga að dagsbirtan styttist, hitastig lækkar og hálka eða snjór getur gert leiðir erfiðari en leiðarlýsing gefur til kynna.

Skoðið veðurspá og aðstæður, klæðist eftir veðri og hafið meðferðis viðeigandi búnað. Að vetri til geta mannbroddar verið nauðsynlegir, jafnvel á styttri og aðgengilegri leiðum. Látið einnig einhvern vita af ferðaáætluninni þegar haldið er í lengri eða afskekktari göngur og munið að snúa við ef aðstæður verða óöruggar. Góður undirbúningur eykur líkurnar á að gangan verði bæði örugg og ánægjuleg.

Gagnlegir hlekkir:

Algengar spurningar um gönguleiðir á Norðurlandi

Hvar finn ég gönguleiðir á Norðurlandi?

Á nordurland.is má finna upplýsingar um 69 gönguleiðir. Þar er hægt að leita að leiðum eftir staðsetningu og sía þær eftir tegund og erfiðleikastigi. Sjá hér: https://www.northiceland.is/is/afangastadir/gonguleidir

Hvernig finn ég gönguleið sem hentar mér?

Gott er að skoða vegalengd, áætlaðan göngutíma, hækkun og erfiðleikastig leiðarinnar. Taktu einnig mið af eigin reynslu, dagsformi, veðri og aðstæðum áður en þú velur leið.

Er hægt að ganga leiðirnar allt árið?

Það fer eftir leið, veðri og aðstæðum hverju sinni. Margar bæjargöngur og leiðir nærri þéttbýli geta hentað á ólíkum árstímum, en snjór, hálka, bleyta og takmörkuð dagsbirta geta breytt erfiðleikastigi þeirra. Að vetri til geta mannbroddar verið nauðsynlegir.

 Hvað ef ég hef lítinn tíma en langar samt út?

Leitaðu að styttri leið í nágrenninu og veldu göngu sem passar inn í daginn. Stutt bæjarganga, hringleið eða ganga að útsýnisstað getur verið góð leið til að komast út án mikils undirbúnings.

 Hvaða gönguleiðir henta fjölskyldum með börn?

Styttri leiðir með lítilli hækkun geta hentað vel fyrir fjölskyldur. Þar má til dæmis nefna Gígahringinn við Skútustaðagíga, Botnsvatnshringinn ofan Húsavíkur og leiðina frá Jólahúsinu að Aldísarlundi á Hrafnagili. Höfðinn við Grenivík getur einnig komið til greina fyrir fjölskyldur sem vilja aðeins lengri göngu. Við val á leið þarf þó alltaf að taka mið af aldri og göngugetu barnanna, yfirborði leiðarinnar, veðri og aðstæðum hverju sinni.

 Eru gönguleiðirnar merktar?

Merkingar eru mismunandi eftir gönguleiðum. Sumar leiðir eru stikaðar eða merktar með skiltum en aðrar eru ómerktar. Upplýsingar um merkingar og yfirborð má finna í lýsingu hverrar leiðar og mikilvægt er að kynna sér þær áður en lagt er af stað.

 Er hægt að hlaða niður gönguleiðum sem GPX-skrám?

Já, hægt er að hlaða gönguleiðunum niður sem GPX-skrám og opna þær í síma, snjallúri eða GPS-tæki. Gott er að hlaða skránni niður áður en lagt er af stað, sérstaklega þegar gengið er á svæðum þar sem símasamband getur verið takmarkað.