Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Haustfríið á Norðurlandi

Haustfríið er kjörið tilefni til að pakka í tösku, taka sundfötin með og skella sér norður með fjölskyldunni. Hér má auðveldlega láta daginn líða við leik og útiveru, skella sér í sund og setjast síðan niður í bakaríi eða á kaffihúsi. Hér höfum við tekið saman nokkrar hugmyndir fyrir fjölskyldur sem vilja gera sér dagamun á Norðurlandi í haustfríinu.

Á Norðurlandi er fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna og auðvelt að finna eitthvað við hæfi í haustfríinu. Hvort sem planið er að njóta útiveru, prófa nýja sundlaug eða heimsækja skemmtilegt safn eru valmöguleikarnir margir. Hér eru nokkrar hugmyndir fyrir frídagana fyrir norðan.

  • Útivera og leikir

    Fjöruferð, göngutúr eða heimsókn á nýtt leiksvæði er skemmtileg viðbót við haustfríið. Á Norðurlandi eru fjölmörg útivistarsvæði með göngu- og hjólastígum, skjólsælum rjóðrum og aðstöðu til að setjast niður með nesti. Í fjörunni má leita að skeljum og litríkum steinum, skoða rekavið og sjá hvað sjórinn hefur skilið eftir. Í Kjarnaskógi á Akureyri eru skemmtileg leiksvæði og ratleikurinn „Úti er ævintýri“, sem byggir á persónum úr barnabókum og gefur gönguferðinni nýjan tilgang. Einnig er gaman að rölta um bæi og þorp, skoða hafnarsvæðin og finna nýja viðkomustaði á leiðinni. Hér má skoða útivistarsvæði á Norðurlandi

  • Sundlaugar og böð

    Sundfötin eru ómissandi í ferðalagið enda fjölbreytt úrval sundlauga og baðstaða á Norðurlandi. Í mörgum sundlaugum eru rennibrautir, barnalaugar og leiktæki sem halda yngri gestunum uppteknum, ásamt heitum pottum þar sem gott er að láta líða úr sér eftir útiveruna. Hér má skoða sundlaugar á Norðurlandi.

    Einnig má gera sér dagamun með heimsókn í Skógarböðin við Akureyri, Sjóböðin á Húsavík, Jarðböðin við Mývatn eða Fjöruböðin á Hauganesi. Þar má njóta heita vatnsins og útsýnisins og eiga notalega stund saman. Hér má skoða böðin á Norðurlandi 

  • Söfn og sýningar

    Það er tilvalið að nýta haustfríið til að heimsækja söfn og sýningar á Norðurlandi. Á Flugsafni Íslands við Akureyrarflugvöll má skoða flugvélar af ýmsum stærðum og gerðum og kíkja inn í nokkrar þeirra. Á Hvalasafninu á Húsavík má sjá beinagrindur hvala, þar á meðal steypireyðar, en á Selasetrinu á Hvammstanga má kynnast lífi og háttum sela við Íslandsstrendur.

    Fyrir þau sem vilja kynna sér sögu og mannlíf svæðisins er gaman að koma við á Minjasafninu á Akureyri eða í Nonnahúsi, æskuheimili rithöfundarins Jóns Sveinssonar.
    Jólahúsið í Eyjafjarðarsveit er svo skemmtilegur viðkomustaður fyrir þau sem vilja komast í smá jólastemningu í haustfríinu og skoða jólaskraut og góðgæti. Hér má skoða söfn á Norðurlandi

Í Mývatnssveit verður vetri fagnað með Slægjufundi í Skjólbrekku laugardaginn 24. október kl. 14. Þar verður dagskrá fyrir unga sem aldna og sameiginlegt kaffiborð sem gestir leggja til veitingar á. Húsið opnar kl. 13 með kökubasar á vegum blakdeildar Mývetnings.

Á Norðurlandi vestra stendur barnamenningarhátíðin Skúnaskrall yfir dagana 21. október–4. nóvember. Þar er fjölbreytt dagskrá fyrir börn og ungmenni, meðal annars dansnámskeið, tröllabrúðusmiðjur, myndlist og ratleikir. Á skunaskrall.is má skoða dagskrá eftir stöðum og finna upplýsingar um skráningu.

Góða skemmtun í haustfríinu!