Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hvernig breytum við 19.500 sætum í bókanir?

Markaðsstofa Norðurlands og Íslandsstofa héldu vinnustofu fyrir samstarfsaðila Markaðsstofunnar í Hofi á Akureyri fimmtudaginn 17. september síðastliðinn. Vinnustofan var haldin í tilefni af nýrri markaðsherferð Íslandsstofu og var leidd af Daða Guðjónssyni, forstöðumanni markaðssamskipta hjá Íslandsstofu, sem hluti af verkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar.

Á vinnustofunni var sjónum beint að breska markaðnum og þeim tækifærum sem felast í beinu flugi easyJet frá London og Manchester til Akureyrar. Farið var yfir nýjustu gögn um breska vetrargesti, stöðu Norðurlands meðal erlendra söluaðila og hvernig fyrirtæki á svæðinu geta nýtt markaðsstarf Íslandsstofu til að breyta auknum áhuga í bókanir og tekjur. Einnig var fjallað um nýja markaðsherferð Íslandsstofu og þær áherslur sem framundan eru í markaðs- og sölustarfi íslenskrar ferðaþjónustu.

Breskir vetrargestir á Norðurlandi

Halldór Óli opnaði vinnustofuna fyrir hönd Markaðsstofu Norðurlands og fór yfir stöðu beina flugsins frá Bretlandi og það sem nýleg gögn segja okkur um breska vetrargesti á Norðurlandi. Kynningin byggði meðal annars á niðurstöðum landamærakönnunar Rannsóknamiðstöðvar ferðamála meðal farþega í beinu flugi frá London og Manchester til Akureyrar veturinn 2024–2025.

Niðurstöðurnar sýna að bresku gestirnir koma gjarnan í stutt vetrarfrí, dvelja oftast í þrjár til fjórar nætur og eru flestir að heimsækja Norðurland í fyrsta sinn. Um helmingur þeirra hefði líklega ekki komið á svæðið ef beina flugsins hefði ekki notið við og um fjórðungur bókaði ferðina innan við mánuði fyrir brottför. Náttúran og beina flugið til Akureyrar vógu þyngst í ákvörðun þeirra um ferðalagið og ánægja með dvölina mældist mjög mikil. Jarðhita- og náttúruböð, veitingastaðir og hvalaskoðun voru meðal vinsælustu upplifananna, en norðurljósin, landslagið, kyrrðin og hlýlegt viðmót heimamanna voru jafnframt nefnd sem hápunktar ferðarinnar.

Nánar má lesa um niðurstöðurnar í skýrslu Rannsóknamiðstöðvar ferðamála, Beint frá Akureyri – Landamærakönnun meðal erlendra ferðamanna veturinn 2024–2025.

Mikill áhugi á Norðurlandi meðal erlendra söluaðila

Daði tók því næst við og fór yfir niðurstöður könnunar meðal 311 erlendra söluaðila frá 35 löndum. Þar var staða Norðurlands sérstaklega skoðuð og hvað þurfi til að fleiri söluaðilar geti tekið svæðið inn í sitt framboð.

Niðurstöðurnar sýna að 62% svarenda selja Norðurland nú þegar. Af þeim sem gera það ekki hafa 85% áhuga á að byrja. Þarfir hópanna eru þó ólíkar. Þeir sem þekkja svæðið og selja það nú þegar kalla helst eftir samkeppnishæfu verði utan háannar, góðu gistiframboði og betri flugtengingum. Þeir sem vilja byrja að selja Norðurland þurfa fyrst og fremst aukna þekkingu á svæðinu, myndefni, tilbúnar ferðaleiðir og tækifæri til að kynnast áfangastaðnum.

Fyrir breska markaðinn kom sérstaklega fram þörf fyrir skýrar og bókanlegar þriggja til fjögurra daga vetrarferðir og betri yfirsýn yfir það sem er í boði á Norðurlandi. Söluaðilar leggja mesta áherslu á að fá að kynnast áfangastaðnum af eigin raun í kynnisferðum, en vinnustofur og beint samtal við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki skipta einnig miklu máli.

Daði fór jafnframt yfir söluviðburði Íslandsstofu árið 2026 og kynnti þau verkefni og viðburði sem eru fyrirhuguð árið 2027. Á árinu 2026 tekur Íslandsstofa þátt í 25 söluviðburðum víða um heim, þar á meðal ferðasýningum, vinnustofum og norrænum samstarfsverkefnum. Markmiðið er að skapa íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum tækifæri til að mynda tengsl við erlenda söluaðila og kynna framboð sitt á mikilvægum mörkuðum.

Ný herferð Visit Iceland

Í framhaldinu kynnti Daði verkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar og fór yfir hugmyndafræðina að baki nýrri markaðsherferð Visit Iceland. Hugmyndafræði herferðarinnar tekur mið af því að sífellt fleiri upplifa álag og óvissu í daglegu lífi og leita því að ferðalögum sem veita bæði líkamlega og andlega næringu. Ísland er í því samhengi kynnt sem heimili líkamlegrar og andlegrar vellíðunar.

Herferðin beinist sérstaklega að ferðamönnum sem velja gæði fram yfir verð, eru tilbúnir að ferðast utan háannar og vilja upplifa fleiri svæði landsins. Þeir leita að innihaldsríkum og ekta upplifunum, vilja kynnast íslenskri náttúru, menningu og samfélagi og ferðast með ábyrgum hætti. Bretland og Bandaríkin verða í forgrunni markaðsstarfsins í vetur, en einnig verður unnið að almannatengslum og viðskiptatengslum á fleiri mörkuðum.

Íslandsstofa vinnur með herferðinni að því að byggja upp vitund og eftirspurn eftir Íslandi, en fyrirtækin gegna lykilhlutverki í að breyta þeim áhuga í bókanir. Þau geta fylgt herferðinni eftir með eigin efni, skýru og bókanlegu framboði og samstilltu markaðs- og sölustarfi. Til að styðja fyrirtæki í þeirri vinnu hafa meðal annars verið teknar saman markaðsskýrslur um Bretland og Bandaríkin, þar sem finna má upplýsingar um markhópa, ferðavenjur og helstu tækifæri á hvorum markaði.

Skýrslurnar og nánari upplýsingar um verkefnið Ferðaþjónusta til framtíðar má nálgast á vef Íslandsstofu.

Gervigreind í ferðaskipulaginu

Einnig var fjallað um vaxandi hlutverk gervigreindar við leit að upplýsingum og skipulagningu ferðalaga. Gögn Íslandsstofu benda til þess að ferðamenn sem hafa áhuga á Íslandi nýti gervigreind í meira mæli en hinn almenni ferðamaður við að kynna sér áfangastaði.

Íslandsstofa mun því leggja aukna áherslu á svokallað GEO, sem snýst um að tryggja sýnileika Íslands og íslenskrar ferðaþjónustu í svörum gervigreindarvéla. Stefnan verður unnin í samstarfi við Íslenska ferðaklasann og Markaðsstofur Landshlutanna, með fræðslu og eftirfylgni fyrir ferðaþjónustufyrirtæki víða um land.

Sérstaða Norðurlands í forgrunni

Að kynningunni lokinni var þátttakendum skipt í hópa þar sem unnið var með sérstöðu Norðurlands sem vetraráfangastaðar. Hóparnir ræddu hvað gerir Norðurland að sérstökum áfangastað þegar kemur að vellíðan og hvaða staðir og upplifanir fanga þá sérstöðu best.

Í framhaldinu vann hver hópur að hugmynd að 40 sekúndna myndbandi fyrir breskan markhóp. Verkefnið byggði á umfjöllun Daða um hvað einkennir gott efni á TikTok, meðal annars hvernig hægt er að fanga athygli strax í upphafi og miðla skýrum skilaboðum á stuttum tíma. Verkefnið tókst vel og margar skemmtilegar og ólíkar hugmyndir litu dagsins ljós.

Glærurnar frá vinnustofunni má nálgast hér

Kynningin var einnig tekin upp og áhugasöm geta haft samband við info@nordurland.is til að fá aðgang að upptökunni.