Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Dagskrá Iceland Airwaves á Akureyri tilbúin

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður nú haldin bæði í Reykjavík og á Akureyri í fyrsta skipti. Skipuleggjendur hátíðarinnar ákváðu að færa út kvíarnar og bjóða upp á tónleika á Akureyri, en fjölmargir listamenn munu koma þar fram.

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður nú haldin bæði í Reykjavík og á Akureyri í fyrsta skipti. Skipuleggjendur hátíðarinnar ákváðu að færa út kvíarnar og bjóða upp á tónleika á Akureyri, en fjölmargir listamenn munu koma þar fram. Gestum hátíðarinnar gefst færi á að kaupa sér miða sem gilda bæði í Reykjavík og á Akureyri, en einnig verður hægt að kaupa miða sem gilda eingöngu á Akureyri. Erlendum gestum gefst kostur á að fljúga beint frá Keflavík til Akureyrar, vera þar í tvo daga og fljúga svo með Air Iceland Connect til Reykjavíkur fyrir lokadaga hátíðarinnar í Reykjavík.

Samtals koma 25 tónlistarmenn og hljómsveitir fram á Akureyri, en þær sveitir koma einnig fram í Reykjavík. Auk þess er gert ráð fyrir „off-venue“ tónleikum. 

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Iceland Airwaves.