Nýtt markaðsverkefni: Ísland í essinu sínu
Markaðsstofa Norðurlands (MN) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa á undanförnum mánuðum unnið að verkefni sem miðar að því að byggja upp aðdráttarafl og leggja grunn að nýrri markaðssókn í ferðaþjónustu. Verkefnið ber heitið Ísland í essinu sínu (e. S marks the spot) og nær yfir svæðið frá Hrútafirði og austur í Fljót. Með sameiginlegum áherslum, skýrum markaðsskilaboðum og nýju kynningarefni er stefnt að því að draga fram sérstöðu svæðisins og auka sýnileika ferðaþjónustunnar.
Ráðgjafar frá hugverkastofunum Instrument og Brandenburg unnu með verkefnateyminu að mörkun, orðfæri og framsetningu. Í þeirri vinnu fæddist heitið Ísland í essinu sínu, með ensku yfirskriftinni S marks the spot. Bókstafurinn S er einkennismerki verkefnisins og tengir saman heiti staða, upplifanir og sögur af svæðinu. Hann gefur jafnframt svigrúm til að leika sér með orð og skilaboð í kynningarefni á íslensku og ensku.
Skýrar áherslur mótaðar í samráði við ferðaþjónustuna
Verkefnið á rætur að rekja til ákalls Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra um markaðsátak fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. MN og SSNV hófu samstarf um verkefnið í lok maí 2025 og hefur það verið fjármagnað að hluta með stuðningi frá Sóknaráætlun Norðurlands vestra.
Við undirbúninginn var meðal annars byggt á niðurstöðum stefnumótunarferlis SSNV. Sérstakur samráðshópur, skipaður fulltrúum ferðamálafélaga á svæðinu, Íslandsstofu og Háskóla Íslands á Hólum, hefur einnig tekið þátt í vinnunni.
Vorið 2026 var send út vefkönnun til skráðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Niðurstöðurnar sýndu almennt stuðning við valdar áherslur og markaðsskilaboð, auk jákvæðra viðhorfa til frekara samstarfs. Flestir svarendur töldu sig þegar vinna með einhverjar af áherslum verkefnisins.
Ísland í essinu sínu verður til
Ráðgjafar frá hugverkastofunum Instrument og Brandenburg unnu með verkefnateyminu að mörkun, orðfæri og framsetningu. Markmiðið var að móta skýra ímynd, sem næði utan um sérstöðu svæðisins og gæfi fjölbreyttu framboði ferðaþjónustunnar samræmdan svip. Úr þeirri vinnu varð heitið Ísland í essinu sínu, með ensku yfirskriftinni S marks the spot.
Heitið vísar til þess að vera í sínu rétta umhverfi, njóta sín og vera upp á sitt besta. Þannig fangar það bæði karakter svæðisins og þá upplifun sem gestum er boðið að kynnast. Í miðju þeirrar frásagnar eru náttúran, sagan og fólkið: víðáttan og kyrrðin, lifandi hefðir og samfélög þar sem tekið er vel á móti gestum.
Bókstafurinn S er einkennismerki verkefnisins og sameiginlegur þráður í kynningarefninu. Hann tengir saman heiti staða, upplifanir og sögur af svæðinu og gefur færi á fjölbreyttri framsetningu á íslensku og ensku. Enska yfirskriftin S marks the spot felur jafnframt í sér boð um að uppgötva svæðið og skapa sitt eigið ferðalag.
Kynning og næstu skref
Verkefnið var kynnt á opnum fundi á Blönduósi 12. október síðastliðinn þar sem um 60 manns sóttu fundinn. Farið var yfir aðdraganda og markmið verkefnisins, helstu áherslur og þá hugmyndavinnu sem liggur að baki heitinu Ísland í essinu sínu og voru viðtökur við verkefninu jákvæðar.
Framundan er að útfæra þessar áherslur í markaðsefni sem vekur áhuga á svæðinu. Sú vinna felur meðal annars í sér efnissköpun og uppsetningu vefsvæðis með upplýsingum, myndefni og ferðatillögum. Með ferðatillögum gefst tækifæri til að tengja saman staði og afþreyingu og sýna hvernig gestir geta upplifað ólíkar hliðar svæðisins í sömu ferð.
Efnið mun nýtast á miðlum MN og í samskiptum við ferðaskrifstofur og fjölmiðla, auk þess að styðja við kynningarstarf sveitarfélaga og fyrirtækja á svæðinu. Þannig verður til sameiginlegur grunnur að markaðsstarfi þar sem aðilar geta byggt á sömu skilaboðum og kynningarefni, um leið og sérstaða hvers staðar fær að njóta sín.





