Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Klár í Kína - Ný dagsetning

Námskeiðið Klár í Kína: Hagnýtt námskeið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og ferðaþjóna verður haldið á Icelandair Hotel Akureyri, fimmtudaginn 6. febrúar nk. kl. 15:00 - 18:00. Þar verður fjallað verður um nálganir í sölu- og markaðsmálum í Kína, hvernig betur megi þjónusta kínverska ferðamenn með því að skilja betur þeirra menningarheim og umhverfi og hvernig íslensk ferðaþjónustufyrirtæki geta betur undirbúið sig fyrir aukin viðskipti frá Kína.

Námskeiðið Klár í Kína: Hagnýtt námskeið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og ferðaþjóna verður haldið á Hótel Kea á Akureyri, miðvikudaginn 19. febrúar nk. kl. 15:00 - 18:00. Athugið að þetta er ný dagsetning, námskeiðið átti að vera fimmtudaginn 6. febrúar en því var frestað.

Þar verður fjallað verður um nálganir í sölu- og markaðsmálum í Kína, hvernig betur megi þjónusta kínverska ferðamenn með því að skilja betur þeirra menningarheim og umhverfi og hvernig íslensk ferðaþjónustufyrirtæki geta betur undirbúið sig fyrir aukin viðskipti frá Kína.

Námskeiðið er haldið af Ársæli Harðarsyni (Regional Manager Asia, Icelandair) og Arnari Steini Þorsteinssyni (Sölustjóri, Nonni Travel). Báðir hafa þeir starfað á Kínamarkaði í rúman áratug og hafa mikla haldbæra reynslu af bæði sölu- og markaðsmálum á hinum risavaxna og margslungna kínverska ferðamarkaði og þjónustu við kínverska ferðamenn.

Þetta er ómissandi námskeið bæði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sem eru nú þegar að þjónusta kínverska ferðamenn og vilja bæta þá þjónustu og þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að efla sitt sölu- og markaðsstarf í Kína með það fyrir augum að fá fleiri beinar bókanir og auka sína framlegð.

Námskeiðið hentar jafnt stjórnendum, sölu- og markaðsfólki, starfsfólki í bókunum og starfsfólki í framlínu fyrirtækja í daglegum samskiptum við kínverska viðskiptavini.

Boðið verður uppá léttar kaffiveitingar.
Verð: 7.900 kr.

Það er hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnarsteinnthorsteins@gmail.com

Ekki verður hægt að taka við greiðslum á staðnum og munum við því senda reikningsupplýsingar vegna greiðslu við móttöku skráningar.
Við hlökkum til að sjá þig!