Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynningarfundur um breska ferðamenn

Fimmtudaginn 8. febrúar, klukkan 14:00 verður haldinn kynningarfundur á breskum markaði fyrir íslenska ferðaþjónustu, en fundurinn er ætlaður ferðaþjónustufyrirtækjum á Norðurlandi og Austurlandi.

Fimmtudaginn 8. febrúar, klukkan 14:00 verður haldinn kynningarfundur á breskum markaði fyrir íslenska ferðaþjónustu, en fundurinn er ætlaður ferðaþjónustufyrirtækjum á Norðurlandi og Austurlandi. Fundurinn er lokahnykkurinn í verkefninu Straumhvörf, sem snýst um vöruþróun í ferðaþjónustu í tengslum við aukið millilandaflug.

Chris Hagan verður með kynninguna, en hann hefur langa starfsreynslu í ferðaþjónustu í Bretlandi og var m.a. driffjöðurin í leiguflugum Super Break til Akureyrar á sínum tíma. Á fundinum mun Chris fara yfir hvernig ferðamenn eru líklegir til að heimsækja Norður- og Austurland, hverju þeir sækjast eftir og hvernig er best að ná til þeirra. Að kynningu lokinni verður boðið upp á að leggja fram spurningar til Chris.

Fundurinn verður á ensku.

Vöruþróunarverkefnið Straumhvörf hefur fengið góðar viðtökur og afrakstur þegar farinn að sjást. Þann 17. janúar s.l. voru kynntar 8 nýjar vörur í ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi fyrir ferðaskrifstofum á höfuðborgarsvæðinu. Kynningarnar voru hluti af Ferðaþjónustuvikunni, þar sem Mannamót voru stærsti viðburðurinn.

Straumhvarfa verkefnið var sett á laggirnar til að hvetja til vöruþróunar, ekki síst m.t.t. aukins millilandaflugs til Norður- og Austurlands. Eins og staðan er núna er easyJet með mestu umsvifin með flugi frá London til Akureyrar tvisvar í viku yfir veturinn. Stýrihópur verkefnisins ákvað því að bjóða upp á kynningarfund þar sem veitt er innsýn í hvernig ferðalangar eru mögulega að koma með flugum easyJet.

Smelltu hér til að opna fundinn