Menntamorgunn - Gervigreindin vinnur á meðan þú drekkur kaffið
Hvað ef þú gætir sparað þér nokkra klukkutíma í hverri viku, án þess að ráða nýtt fólk eða kaupa dýran hugbúnað?
25.11.2026
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar · 1. desember kl. 11:00–12:00 · á Zoom
Á næsta Menntamorgni sýnum við í verki hvernig gervigreind getur létt á daglegum rekstri í ferðaþjónustu. Þetta er hagnýtur fundur með sýnikennslu, og þú getur fylgst með hvar sem þú ert.
Gervigreindin sjálf er líka á mælendaskrá. Í upphafi fundar leggur Jóhannes Þór Skúlason fyrir hana verkefni. Hún vinnur það á meðan aðrir fyrirlesarar tala og í lokin sjáum við afraksturinn.
Dagskrá
- Fundarstjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF og formaður stýrihóps Hæfnisetursins
- Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Hótel Breiðdalsvík: „Fáðu gögnin til að tala með gervigreindinni“
- Valur Heiðar Sævarsson, stofnandi Your Friend in Reykjavík: „Claudette klárar málið“
Fundurinn er ókeypis og opinn öllum í ferðaþjónustu!
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna.
Skráðu þig hér: https://haefni.is/vidburdir