Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Met slegin í júlí og ágúst

Íslendingar nýta tækifærin sem felast í öflugri ferðaþjónustu á Norðurlandi í meiri mæli en áður og seldum gistináttum heldur áfram að fjölga yfir sumartímann.

Seldum gistinóttum á Norðurlandi heldur áfram að fjölga, en samkvæmt tölum frá Hagstofunni var slegið met í júlí og ágúst. Þetta er í samhengi við  þróunina í maí og júní , en sérstaka athygli vekur fjölgun gistinátta í ágúst sem sýnir enn betur þá þróun að sumartímabilið er orðið lengra og teygir sig nú frá maí og vel inn í september. Þar spilar aukið millilandaflug um Akureyrarflugvöll lykilhlutverk.

Íslendingar hafa áfram nýtt sér tækifærin sem felast í enn öflugri ferðaþjónustu, því gistinóttum þeirra hefur fjölgað umtalsvert frá því sem var fyrir heimsfaraldur. Í júlí voru gistinæturnar til dæmis tæplega 60% fleiri en árið 2018 og í ágúst voru þær rúmlega í 145% fleiri en árið 2018. Íslendingum á ferðalagi um Ísland hefur því ekki fækkað frá því sem áður var, ef ekki er tekið mið af árunum 2020-2021 sem voru verulega lituð af heimsfaraldrinum.

Nýting hótel herbergja hefur farið upp á við og var rúmlega 80% í júlí og 83% í ágúst. Næg tækifæri eru til staðar til að taka á móti fleira ferðafólki yfir sumarið og til að nýta þau er samstaða ferðaþjónustufyrirtækja, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila mikilvæg.

Í því samhengi má nefna að nú er verkefnið Straumhvörf að hefjast, sem snýst um vöruþróun í ferðaþjónustu í tengslum við millilandaflug á Norður- og Austurlandi. Verkefnið er samstarfsverkefni Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrúar og samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.

Verkefnið verður kynnt á opnum Teams fundi fimmtudaginn 12. október klukkan 10.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um Straumhvörf.