Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?

Þriðjudaginn 10. nóvember standa Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú að fundi um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram í Hofi á Akureyri kl. 17:00-19:00 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?

Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti en á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf um allt land. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa. Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun um land allt.

Fundurinn verður bæði staðfundur og í beinni útsendingu á vef SAF – saf.is. Þau sem hafa hug á að mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig, ekki þarf að gera slíkt ef áhugasamir ætla að horfa á streymi en við hvetjum fólk til að setja fundinn í dagbókina engu síður.

Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á stöðu ferðaþjónustunnar og við vonumst til að sjá ykkur sem flest í Hofi á Akureyri þann 10. nóvember!

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar og til að skrá þig