Ný stjórn kjörin á aðalfundi Markaðsstofu Norðurlands 2026
Á Norðurlandi vestra barst aðeins eitt framboð, frá Erni Arnarsyni sem hefur setið í stjórn undanfarin ár. Hann taldist því sjálfkjörinn og mun áfram gegna stjórnarsetu næstu tvö ár að minnsta kosti.
Á Norðurlandi eystra bárust tvö framboð: Edda Hrund Skagfield Guðmundsdóttir frá Skógarböðin ehf. og Helga Nína Helgadóttir frá SBA Norðurleið gáfu kost á sér. Í kosningu hlaut Helga Nína flest atkvæði og tekur hún því sæti í stjórn næstu tvö ár að minnsta kosti.
Tvö framboð bárust til varamanns, frá Tómasi Árdal hjá Arctic Hotels og Þorbjörgu Jóhannsdóttur frá Höldi. Þar sem bæði höfðu gegnt hlutverki varamanns áður og engin önnur framboð bárust voru þau sjálfkjörin til eins árs.
Ný stjórn er sem hér segir:
- Viggó Jónsson – Drangeyjarferðir
- Sara Sigmundsdóttir – Elding Hvalaskoðun
- Ármann Örn Gunnlaugsson – GeoSea
- Örn Arnarson – Hótel Laugarbakki
- Helga Nína Helgadóttir – SBA Norðurleið
- Fulltrúi SSNE: Hlynur Jóhannsson
- Fulltrúi SSNV: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
- Varamenn: Tómas Árdal – Arctic Hotels og Þorbjörg Jóhannsdóttir – Höldur
Með þessum kosningum lýkur Edda Hrund Skagfield Guðmundsdóttir setu sinni í stjórn MN. Hún hefur setið í stjórn í samtals sex ár, með hléum, og eru henni færðar kærar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Að aðalfundarstörfum loknum fór fram ráðstefnan „Segjum sögur af fjárfestingum". Upptaka af ráðstefnunni er aðgengileg á Facebook-síðu MN. Yfirlit yfir starfsemi ársins 2025 má nálgast hér.