Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Nýjar gönguleiðir skráðar á vef Markaðsstofu Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands hlaut styrk úr Sóknaráætlun SSNE til að halda áfram þróun gönguleiða á svæðinu. Verkefnið er framhald af skráningu gönguleiða 2025, þar sem 17 gönguleiðir voru skráðar. Í þetta skiptið var sjónum beint að bæjargöngum í bæjum og þorpum svæðisins. Með því að draga fram menningarminjar, náttúruperlur og byggðasögu, er stuðlað að dýpri upplifun gesta, lengri viðveru og aukinni verðmætasköpun í heimabyggð.
 
Megintilgangur verkefnisins er að miðla, samræma og skrá nýjar gönguleiðir sem hefjast innan bæjarmarka en geta teygt sig út fyrir þéttbýlið. Markmiðið er að hvetja fólk til ábyrgrar útivistar og ferðalaga allt árið um kring, sem styður beint við markmið Sóknaráætlunar SSNE um heilsueflingu, aukin lífsgæði og jafnt aðgengi að útivist.
 
Til að tryggja faglega framkvæmd og samstarf við sveitarfélögin, var ráðinn starfsmaður sem gekk allar leiðirnar, merkti þær með GPX-skrám, tók ljósmyndir og skrifaði greinargóðar lýsingar á íslensku og ensku.
 
Allar leiðirnar eru aðgengilegar inná heimasíðu Markaðsstofunnar: https://www.northiceland.is/is/afangastadir/gonguleidir