Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Okkar áfangastaður - DMP stöðuskýrsla komin út

Í dag kom út stöðuskýrsla vegna DMP-verkefnisins sem Markaðsstofa Norðurlands vinnur að, ásamt Ferðamálastofu, Selasetrinu á Hvammstanga og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga. Í skýrslunni er farið yfir þá vinnu sem nú þegar er lokið, farið er yfir hvað er framundan og hverjar áherslur þess verða.

Í dag kom út stöðuskýrsla vegna DMP-verkefnisins sem Markaðsstofa Norðurlands vinnur að, ásamt Ferðamálastofu, Selasetri Íslands og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga. Í skýrslunni er farið yfir þá vinnu sem nú þegar er lokið, farið er yfir hvað er framundan og hverjar áherslur þess verða. Búið er að velja 15 verkefni sem teljast til forgangsverkefna í ferðaþjónustu á Norðurlandi, en tilgangurinn verkefnisins er einmitt sá að kortleggja ferðaþjónustuna og stöðu hennar. Alls bárust hugmyndir að 68 verkefnum.

Í skýrslunni kemur einnig fram hver framtíðarsýn Norðurlands er, en bæði hún og val á forgangsverkefnum er afrakstur svæðisfunda sem haldnir voru síðasta haust vegna DMP. Fundirnir voru vel sóttir og þakkar Markaðsstofa Norðurlands þátttakendum kærlega fyrir þeirra framlag.

Skýrsluna má lesa með því að smella hér.