Samstaða um sjálfbæra ferðaþjónustu
Verkefnið Sjálfbær ferðaþjónusta á Norðurlandi var skilgreint sem áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra á tímabilinu 2022-2024. Markaðsstofu Norðurlands var falin framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).
MN hefur á þessu tímabili unnið að ýmsum viðfangsefnum sem hafa það að markmiði að hvetja til aukinnar vitundar um sjálfbærni í ferðaþjónustu. Í kjölfar greiningarvinnu sem unnin var með aðkomu svissneska ráðgjafafyrirtækisins Kontiki var ákveðið að leggja höfuðáherslu á samfélags- og hagræna þætti í áframhaldandi umræðu um viðfangsefnið. Dregnar voru út tvær megináherslur:
- Aukinn hagur heimamanna (benefits local communities)
- Auknar heilsárstekjur (increases local creation, all year round).
Mörg ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi hafa tileinkað sér gildi sjálfbærar þróunar. Þau eiga það sameiginlegt að hafa innleitt áherslur og/eða verkefni sem eru til þess fallin að efla sjálfbærni, m.a. með bættan hag nærsamfélagsins að leiðarljósi.
MN hefur nú tekið saman frásagnir af starfi nokkurra þessara fyrirtækja. Fyrirtækin sem greint er frá að þessu sinni eru Geosea á Húsavík, Ytra Lón Farm & Retreat á Langanesi, Vogafjós í Mývatnssveit og Höldur – Bílaleiga Akureyrar. Tilgangur þessara frásagna er m.a. að auka vitund forsvarsaðila annarra ferðaþjónustufyrirtækja um sjálfbærni og hvetja þá til góðra verka.
Smelltu hér til að skoða frásagnir
Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir fleiri slíkum frásögnum og ábendingum um fyrirtæki í ferðaþjónustu sem leggja áherslu á sjálfbærni. Sendu póst á info@nordurland.is ef þú vilt koma slíku fyrirtæki á framfæri.