Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Segjum sögur af fjárfestingum

Í kjölfar aðalfundar er boðað til ráðstefnu sem ber titilinn „Segjum sögur af fjárfestingum.“ Ráðstefnan verður í formi erinda og einnig verður farið í heimsóknir sem tengjast málefninu. Ráðstefnan er á Múlaberg.

Ráðstefnan er opin öllum og við hvetjum sem flest til þess að mæta á Múlaberg, ráðstefnan verður einnig send út í gegnum Facebook viðburðinn https://fb.me/e/bDLdY4XyN. Mikilvægt er að skrá sig hér fyrir neðan.

Skráning

Dagskrá inniheldur meðal annars erindi og heimsóknir frá þessum aðilum.

Fundarstjóri er Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri MN

Sigrún Björk, framkvæmdastjóri Isavia innanlands
Fjallar um uppbyggingu á Akureyrarflugvelli.

Gísli Brynjólfsson, markaðsstjóri Icelandair
Fjallar um fjárfestingu í markaðssetningu og nýja herferð

Örn Arnarson, eigandi Hótel Laugarbakka
Fjárfesting í hótelum á Norðurlandi vestra, er með rekstur á Hótel Laugarbakka og Hótel Blönduós 

Jóhann Guðni Reynisson, Fjöruböðin
Einn af eigendum Fjörubaðanna og hann fjallar um framtíðaráform á svæðinu

Guðmundur Þór, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna
Jarðböðin eru að opna nýtt og glæsilegt baðlón ásamt því að nýtt vörumerki leit dagsins ljós fyrir stuttu

Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps
Hvernig sveitarfélög geta sótt fjárfestingu í ferðaþjónustu og skýr sýn varðandi millilandaflug skiptir máli

Kristín Katrín Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri sölu, markaðs og menningar hjá Hótel Skáld, heimsókn
Við fáum kynningu á hótelinu sem er það fyrsta á Norðurlandi sem er hluti af alþjóðlegri keðju

Edda Hrund Guðmundsdóttir Skagfield, hótelstjóri hjá Skógarböðin ehf, heimsókn og bað
Böðin hafa nýlega stækkað mikið og næsta verkefni er komið vel á veg. Við lítum á framkvæmdir á nýju hóteli Skógarbaðanna. Skógarböðin bjóða í bað að lokinni heimsókn og því mikilvægt að taka með sér baðföt. 

Skráning hér