Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sólmyrkvinn er í dag!

Í dag, miðvikudaginn 12. ágúst, verður sólmyrkvi á Íslandi. Hér á Norðurlandi verður mjög djúpur deildarmyrkvi síðdegis. Myrkvinn verður mestur vestast í landshlutanum og við Hvammstanga, Laugarbakka og Blönduós verður um 99% sólar hulið. Hámarkið verður þar í kringum kl. 17:45–17:46.

Skýjafar ræður því hversu vel myrkvinn sést, en samkvæmt nýjustu veðurspám eru mestar líkur á að skýjahulan rofni á norðvestanverðu landinu. Hvernig sem viðrar mun þó dimma greinilega þegar myrkvinn nær hámarki.

Finndu stað með opnu útsýni

Ef veður leyfir er best að velja opið svæði þar sem byggingar, tré eða fjöll skyggja ekki á sólina. Við Húnaflóa er víða gott og opið útsýni, meðal annars við Blönduós og Hvammstanga, auk þess sem sveitirnar í kringum Laugarbakka bjóða víða upp á víðan sjóndeildarhring.

Veldu öruggan áningarstað eða merkt bílastæði og gættu þess að stöðva ekki á vegöxl eða þar sem bíllinn getur hindrað umferð. Virðum einnig einkalönd og fylgjum leiðbeiningum á hverjum stað.

Í grein okkar um sólmyrkvann á Norðurlandi má finna upplýsingar um myrkvun og tímasetningar á mismunandi stöðum, auk hugmynda að stöðum með góðu útsýni ef veður leyfir.

Smelltu hér til að lesa um Sólmyrkvann á Norðurlandi

Gerðu gott úr ferðalaginu

Ef þú ert á ferðinni um Norðvesturland er tilvalið að gefa sér góðan tíma og koma við á einum af veitingastöðum svæðisins fyrir eða eftir myrkvann.

Á Laugarbakka og í nágrenni má meðal annars finna Bakka Restaurant á Hótel Laugarbakka og North West Hotel. Á Blönduósi eru Teni, Brimslóð Atelier Guesthouse og B&S Restaurant og á Hvammstanga er hægt að heimsækja Sjávarborg.

Við mælum með að athuga opnunartíma og bóka borð fyrirfram þar sem það á við, enda má búast við að fleiri verði á ferðinni en venjulega. Það er líka góð hugmynd að taka með sér heimasmurt nesti, vatn og finna rólegan stað til að bíða eftir myrkvanum. 

Gefðu þér góðan tíma

Búast má við aukinni umferð síðdegis og mögulega töfum, sérstaklega á Norðvesturlandi. Leggðu tímanlega af stað, fylgstu með aðstæðum og vertu þolinmóð/ur í umferðinni. Ekki flýta þér af stað um leið og myrkvinn er liðinn; stundum er betra að bíða aðeins, fá sér að borða eða njóta svæðisins á meðan mesta umferðin gengur yfir.

Fylgjast má með nýjustu sólmyrkvaspánni á gottvedur.is og vegaaðstæðum og umferð á umferdin.is.

Gætum að augunum

Norðurland er utan almyrkvabeltisins og því verður sólin aldrei alveg hulin. Ef sólin lætur sjá sig þarf að nota vottuð sólmyrkvagleraugu allan tímann sem horft er til hennar. Venjuleg sólgleraugu veita ekki næga vörn.

Ekki horfa í sólina í gegnum myndavélar, sjónauka eða önnur sjóntæki nema viðeigandi sólarsía sé fest framan á búnaðinn.

Hvernig sem skýjafarið verður má búast við eftirminnilegri breytingu á birtunni þegar myrkvinn nær hámarki.

Gefum okkur tíma, förum varlega og njótum augnabliksins.