Sólmyrkvinn 12. Ágúst - Hagnýtar upplýsingar
Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á sólu á Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Um allt Norðurland verður umtalsverður deildarmyrkvi sem hefst um kl 16:47 og nær hámarki rétt fyrir klukkan 18.
Búast má við tímabundinni fjölgun ferðafólks, aukinni umferð og álagi á innviði í tengslum við sólmyrkvann. Við hvetjum því samstarfsaðila og önnur fyrirtæki til að kynna sér hagnýtar upplýsingar vegna dagsins og miðla þeim áfram.
Sólmyrkvinn á Norðurlandi
Myrkvinn verður hvað mestur vestast á Norðurlandi, meðal annars við Laugarbakka, Blönduós og Hvammstanga. Engu að síður verður hann mjög áberandi um allan landshlutann og á Akureyri verður til dæmis 97,9% deildarmyrkvi.
Fyrr í sumar birtum við ítarlega grein um sólmyrkvann á Norðurlandi. Þar má meðal annars finna yfirlit yfir áætlaða myrkvun og tímasetningar á fjölmörgum stöðum, hugmyndir að góðum útsýnisstöðum og mikilvægar upplýsingar um augnöryggi og undirbúning.
Smelltu hér til að lesa greinina
Gagnlegar upplýsingar
Hér fyrir neðan má finna gagnlegar upplýsingar fyrir ferðaþjónustuaðila, starfsfólk, gesti og viðskiptavini:
- Ferðamálastofa – hagnýtar upplýsingar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti
- Ísland.is – góð ráð til ferðafólks vegna almyrkvans
- Vegagerðin – upplýsingar um umferðarstýringu og vegalokanir
- Umferðin.is – færð, umferð og ástand vega í rauntíma
- SafeTravel – öryggisupplýsingar fyrir ferðafólk
- Samgöngustofa – upplýsingar fyrir þau sem ætla að ferðast, sigla eða fljúga drónum
- Sólmyrkvi2026.is – kort, tímasetningar og almennar upplýsingar
Kynningarefni vegna sólmyrkvans
Útbúið hefur verið auglýsinga- og kynningarefni vegna sólmyrkvans sem fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum samstarfsaðilum er frjálst að nýta. Efnið hefur verið útfært fyrir samfélagsmiðla, vefi og prent og byggir á þremur lykilskilaboðum:
- Gætum að augunum.
- Verum heima við – sólmyrkvinn kemur til okkar.
- Skipuleggjum ferðir okkar vel með þolinmæði að leiðarljósi.
Efnið er aðgengilegt í myndabanka Markaðsstofu Norðurlands á Brandcenter og er samstarfsaðilum frjálst að nýta það á sínum miðlum
Sækja auglýsingaefnið á Brandcenter
Ef þið lendið í vandræðum með að nálgast eða sækja efnið, endilega hafið samband við okkur.