Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Uppskeruhátíð í Skagafirði 23. október

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi verður haldin í Skagafirði, fimmtudaginn 23. október næstkomandi.

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi verður haldin í Skagafirði, fimmtudaginn 23. október næstkomandi. Farið verður í heimsóknir til fyrirtækja og á áhugaverða staði í nágrenninu. Dagskrá kvöldsins inniheldur kvöldverð og svo verður skemmtun til miðnættis, þar sem afhentar verða viðurkenningar.  Hægt verður að skipta um föt fyrir kvölddagskrá.

Fyrirkomulagið verður með hefðbundnu sniði. Rúta leggur af stað frá Hofi á Akureyri kl. 8:30 um morguninn. Mæting er í síðasta lagi kl. 8:20. Dagskrá hefst svo í Miðgarði í Varmahlíð, 9:45. Hægt er að koma beint þangað og fara þar um borð í rútuna.

Boðið verður upp á rútuferð til Akureyrar að skemmtun lokinni, rútan mun koma við í Miðgarði fyrir þau sem skilja bílana sína eftir þar um morguninn. Rútan sem fer til Akureyrar á föstudagsmorgun mun einnig stoppa í Varmahlíð, fyrir þau sem verða með bíla þar.

Ef einhver hefur ofnæmi eða séróskir varðandi mat skal tilgreina slíkt í skráningarforminu.

Uppskeruhátíðin er einungis fyrir samstarfsfyrirtæki MN. Kostnaður við þátttöku er kr. 13.000 kr á mann. Innifalið í því er rúta frá Akureyri og aftur til baka, hádegismatur og ýmsar léttar veitingar, kvöldverður og skemmtidagskrá. Skráningargjald verður innheimt 22. október og verður ekki endurgreitt eftir það.

Skráning

Tilboð á gistingu

Hótel Tindastóll býður upp á sértilboð vegna Uppskeruhátíðar, hægt er að fá nánari upplýsingar og bóka með tölvupósti á info@arctichotels.is

Hofsstaðir bjóða upp á sértilboð vegna Uppskeruhátíðar, hægt er að fá nánari upplýsingar og bóka með tölvupósti á info@hofstadir.is

English

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi celebration will be held in Skagafjörður on Thursday, October 23rd. Visits will be made to local businesses and interesting places in the area. The evening program includes dinner and entertainment until midnight, during which awards will be presented. It will be possible to change clothes before the evening program starts.

The event will follow the traditional format, with the day starting at Hof in Akureyri with a bus departing at 8:30 AM. Attendees should arrive no later than 8:20 AM.

A bus ride back to Akureyri will be provided after the evening's entertainment.

If anyone has allergies or specific dietary requests, please indicate this on the registration form.

The celebration is exclusively for MN partner companies. The participation fee is ISK 13,000 per person, which includes the bus ride to and from Akureyri, lunch and light refreshments, dinner, and the evening entertainment program. The registration fee will be charged on October 20th and will not be refunded after that date.

Register

Accommodation offers
Hótel Tindastóll has a special offer for Uppskeruhátíð. More info and booking is at info@arctichotels.is

Hofsstaðir has a special offer for Uppskeruhátíð. More info and booking is at info@hofstadir.is