Skráning er hafin á Uppskeruhátíð!
Uppskeruhátíðin er árlegur vettvangur samstarfsfyrirtækja Markaðsstofu Norðurlands til að hittast, efla tengsl og kynnast betur því fjölbreytta starfi sem unnið er í ferðaþjónustu um allan landshlutann.
Fyrirkomulagið verður með hefðbundnu sniði. Rúta fer tímanlega frá Hofi klukkan 8 um morguninn og stoppar á Húsavík fyrir þau sem vilja fara þaðan. Brottför frá Húsavík er klukkan 9:15 og er förinni þá heitið í Hótel Skúlagarð þar sem formleg dagskrá hefst klukkan 10:00. Hægt er að mæta beint í Hótel Skúlagarð og fara þar um borð í rútuna.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á rútuferð frá Raufarhöfn að Hótel Skúlagarði. Einnig fer rúta frá Raufarhöfn kl. 10:00 föstudaginn 16. október.
Þátttakendur eru hvattir til þess að nýta tilboð sem gististaðir á svæðinu bjóða upp á vegna hátíðarinnar. Sjá tilboð hér að neðan.
Ef einhver hefur ofnæmi eða séróskir varðandi mat skal tilgreina slíkt í skráningarforminu.
Uppskeruhátíðin er einungis fyrir samstarfsfyrirtæki MN. Kostnaður við þátttöku er 14.000 kr á mann. Innifalið í því er rúta, hádegismatur og ýmsar léttar veitingar, kvöldverður og skemmtidagskrá. Skráningargjald verður innheimt 13. október og verður ekki endurgreitt eftir það.
Tilboð á gistingu
Hreiðrið býður sértilboð vegna Uppskeruhátíðar, hægt er að bóka með tölvupósti á info@nesthouse.is
- Gisting án morgunverðar: 13.500 kr. á mann.
- Gisting með morgunverði: 15.500 kr. á mann.
Hótel Norðurljós býður sértilboð vegna Uppskeruhátíðar, hægt er að bóka með tölvupósti á info@hotelnordurljos.is
- Gisting á Hóteli. 2ja manna herbergi m/snyrtingu: 30.000-
- Gisting í íbúð í Blokk: 12.000 kr. á mann
- Morgunverður: 2.000 kr. á mann
Uppskeruhátíðin er kjörið tækifæri til að kynnast fólkinu á bak við ferðaþjónustuna á Norðurlandi, mynda ný tengsl og verða virkur hluti af öflugu samstarfsneti greinarinnar. Við hvetjum fyrirtæki til að bjóða starfsfólki sínu með og gefa því tækifæri til að taka þátt í þessum skemmtilega degi með okkur.