Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vaxandi áhugi á Norðurlandi á alþjóðlegum ferðaviðburðum

Fulltrúar Markaðsstofu Norðurlands sóttu tvo alþjóðlega ferðaviðburði í september: Norræna vinnustofu í Frankfurt og ferðakaupstefnuna Vestnorden í Grænlandi. Viðburðirnir gáfu gott tækifæri til að kynna Norðurland fyrir ferðaskrifstofum frá ólíkum mörkuðum og efla tengsl við erlenda samstarfsaðila.

Vaxandi áhugi á Norðurlandi á Norrænni vinnustofu í Frankfurt 

Norræn vinnustofa á vegum Íslandsstofu fór fram í Frankfurt 17. september og sótti Katrín hana fyrir hönd Markaðsstofu Norðurlands. Þar gafst þátttakendum tækifæri til að hitta þýskar ferðaskrifstofur og kynna Ísland sem áfangastað fyrir vetrarferðir.

Markaðsstofan átti fjölmarga góða fundi og það var sérstaklega ánægjulegt að finna fyrir miklum og vaxandi áhuga á Norðurlandi. Þekking þýsku ferðaskrifstofanna á svæðinu fer vaxandi og flestar þekktu þær nú þegar okkar helstu ferðamannaleiðir, Demantshringinn og Norðurstrandarleið. Það gefur okkur góðan grunn til að halda áfram að kynna fjölbreytileika Norðurlands, allt árið.

Norðurland kynnt á Vestnorden í Grænlandi

Ferðakaupstefnan Vestnorden fór fram í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–24. september. Kaupstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum og skapar einstakt tækifæri til að hitta ferðaskrifstofur og samstarfsaðila frá fjölmörgum mörkuðum.

Halldór og Katrín sóttu kaupstefnuna fyrir hönd Markaðsstofu Norðurlands og áttu þar fundi með ferðaskrifstofum víðs vegar að úr heiminum. Það var ánægjulegt að sjá hversu vel Norðurland er orðið þekkt meðal þátttakenda og margir voru áhugasamir um nýjar upplifanir og leiðir til að lengja dvöl ferðamanna á svæðinu.

Sérstök áhersla var lögð á þau tækifæri sem felast í beinu flugi til Akureyrar ásamt því að kynna Demantshringinn og Norðurstrandarleið, sem og fjölbreyttum upplifunum um allt Norðurland. Einnig er alltaf ánægjulegt að geta kynnt nýjungar í ferðaþjónustu á Norðurlandi samhliða því sem þegar dregur gesti til svæðisins. Slíkum fréttum er jafnan vel tekið og því tökum við ávallt fagnandi á móti ábendingum frá samstarfsfyrirtækjum okkar um nýjungar eða annað sem þið viljið koma á framfæri.

Það er greinilegt að áhuginn á Norðurlandi er að aukast og tengslanetið stækkar með hverjum viðburðinum. Það er því nóg að gera hjá Markaðsstofunni í að halda áfram samtalinu við erlenda samstarfsaðila og koma Norðurlandi enn betur á kortið.