Verkefnastjóri markaðsmála og miðlunar
Markaðsstofa Norðurlands leitar að drífandi og skipulagðri markaðsmanneskju í starf verkefnastjóra markaðsmála og miðlunar.
Starfið krefst ferðalaga, sjálfstæðra vinnubragða og sveigjanlegs vinnutíma.
Verkefnastjóri vinnur í nánu samstarfi við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á öllu Norðurlandi að þróun og uppbyggingu áfangastaðarins og þarf að hafa brennandi áhuga og góða þekkingu á markaðsmálum og mikla þjónustulund.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og þátttaka í markaðs- og kynningarmálum
- Ábyrgð og framkvæmd markvissrar stafrænnar miðlunar, m.a. í gegnum vef- og samfélagsmiðla
- Miðlun upplýsinga og samskipti við hagsmunaaðila
- Vinna í almannatengslum með áherslu á erlenda markaði
- Greining markaðsgagna og eftirfylgni
- Stuðningur og leiðsögn til fyrirtækja og sveitarfélaga
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum vinnustaðarins
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði markaðsmála eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking á markaðsmálum og miðlun
- Reynsla af greiningum, áætlanagerð og eftirfylgni
- Góð þekking á vefumsjón, samfélagsmiðlum og stafrænni markaðssetningu
- Þekking á ferðaþjónustu er kostur
- Rík hæfni í samskiptum og samstarfi
- Hugmyndauðgi og drifkraftur
- Frumkvæði og sjálfstæði auk nákvæmni í vinnubrögðum
- Góð almenn tölvufærni og hæfni/vilji til að tileinka sér nýjungar
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Telma Eiðsdóttir I telma@mognum.is og Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. mars 2026.
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Markaðsstofa Norðurlands starfar á svæðinu frá Hrútafirði til Bakkafjarðar. MN vinnur að markaðssetningu og þróun Norðurlands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki, sveitarfélög og ríki.
Starfsstöð getur verið vítt og breitt um Norðurland samkvæmt samkomulagi.
Starfsstöðvar eru í húsnæði MN á Akureyri eða í húsnæði landshlutasamtakanna SSNV og SSNE á Blönduósi, Skagaströnd, Sauðárkróki, Hvammstanga, Húsavík, Bakkafirði, Raufarhöfn og Siglufirði. Varðandi starfstöðvar SSNE og SSNV þá er sá fyrirvari að unnt sé að koma fyrir viðbótar starfsstöð.